Byrjað að spila póker á PokerStars - Mac-notendur

Það gæti ekki verið einfaldara að byrja að spila póker á PokerStars. Þú byrjar á því að smella á HLAÐA NIÐUR POKERSTARS til að byrja uppsetninguna.

Fylgdu síðan 3 einföldum skrefum sem lýst er hér á eftir til að ljúka uppsetningunni á hugbúnaðinum og stofna PokerStars-reikninginn þinn.

Uppsetningin á að ganga snurðulaust fyrir sig en ef þú lendir í einhverjum erfiðleikum skaltu senda tölvupóst á support@pokerstars.com til að fá aðstoð.

Windows-notendur ættu að fara á síðuna Windows-niðurhal.

SKREF 1 - Hlaða niður PokerStars-hugbúnaðinum
Sæki PokerStars-hugbúnaðinn fyrir Mac. Smelltu fyrst á HLAÐA NIÐUR og síðan, ef beðið er um það, á „Vista skrá”. Uppsetningarhugbúnaðurinn hleður nú niður á skjáborðið hjá þér eða í niðurhalsmöppuna.
SKREF 2 – Setja upp hugbúnaðinn

Set upp PokerStars Mac-hugbúnaðinn í forritamöppuna


Set upp PokerStars Mac-hugbúnaðinn í forritamöppuna


Set upp PokerStars Mac-hugbúnaðinn í forritamöppuna

Um leið og niðurhali er lokið ætti uppsetningarforritið að fara sjálfkrafa í gang og þér leiðbeint um uppsetningu hugbúnaðarins.
Ef þetta gerist ekki sjálfkrafa skaltu kynna þér skrefin hér að neðan.

Þegar uppsetningu er lokið ræsist PokerStars-biðlarinn og þú getur haldið áfram í skref 4.

Ef uppsetningarforritið fer ekki sjálfkrafa í gang þegar niðurhali lýkur skaltu opna skrána PokerStarsInstall.pkg í niðurhalsmöppunni (eða á skjáborðinu).
Þegar þú hefur opnað skrána finnur þú PokerStarsInstall í sömu möppu. Opnaðu PokerStarsInstall og þá hefst sama uppsetningarferli og lýst var hér að ofan.
SKREF 3 – Ræsa PokerStars-hugbúnaðinn
Keyri PokerStars-hugbúnaðinn á Mac Ef PokerStars var ekki ræst sjálfkrafa skaltu tvísmella á PokerStars-táknið í forritamöppunni (Applications). PokerStars-hugbúnaðurinn ræsist nú á tölvunni.
SKREF 4 – Stofna eigin reikning
Stofna reikning Stofnaðu nú ókeypis PokerStars-reikning. Farðu á „Reikningur” í valmyndastikunni efst á skjánum og veldu svo „Stofna reikning”. Fylltu út nauðsynlega reiti á skráningareyðublaðinu og gættu þess að nota gilt netfang. Við sendum staðfestingarkóðann sem þarf til að ljúka við að stofna reikninginn á það netfang.
SKREF 5 – Staðfesta reikninginn
Staðfesta PokerStars Mac-reikninginn þinn Þegar þú hefur skráð þig sendum við staðfestingarkóða á netfangið sem fært var inn í skrefi 4. Til að staðfesta reikninginn þinn skaltu fara í valmyndastikuna efst á skjánum, velja „Reikningur“ og síðan „Staðfesta netfang”. Færðu inn kóðann sem þú fékkst í tölvupósti og smelltu svo á „Staðfesta“. Nú getur þú farið að spila.

PokerStars kerfiskröfur fyrir Mac - Pókerspilabiðlari

Hugbúnaður: Mac OS X 10.4.10 eða nýrri
Vélbúnaður: Lágmarks kerfissamsetning:
• PowerPC G4 eða G5 eða Intel Mac
• 512MB RAM
• 1024x768 skjáupplausn eða hærri
• 60MB laust diskrými
• 56k internet-hringitenging

Kerfissamsetning sem mælt er með:
• PowerPC G4 1Ghz eða hraðvirkari, PowerPC G5 eða Intel Mac
• 1024MB RAM
• 1024x768 skjáupplausn eða hærri
• 100MB laust diskrými
• 128kbps eða hraðvirkari DSL- eða kapalinternettenging

Þjónustuteymi PokerStars er til staðar allan sólarhringinn. Ef þú þarft aðstoð til að geta byrjað eða við einhvern hluta PokerStars skaltu ekki hika við að senda okkur tölvupóst á support@pokerstars.com.

Athugið að sumir tenglarnir á þessu svæði opna ensku útgáfuna af PokerStars
í nýjum glugga.

Um okkur | Skilmálar og skilyrði | Öryggi | Meðferð persónuupplýsinga | Svæðisyfirlit
Höfundarréttur © 2001- 2010, PokerStars. Allur réttur áskilinn. Rational Entertainment Enterprises Limited, 33-37 Athol Street,
Douglas, IM1 2LD, Isle of Man. Leyfi endurnýjað 1. ágúst, 2010. Netveðmál eru háð reglum á eynni Mön