Pókerviðburðir

Á PokerStars fara fram bestu pókerviðburðir í heimi, þar á meðal hinn vikulegi Sunday Million og árlegi World Championship of Online Poker. Spilarar okkar hafa gert okkur kleift að setja heimsmetið í stærsta pókermóti sem haldið hefur verið og með rúmlega $300 milljónir greiddar út í verðlaun mánaðarlega er PokerStars eini netpókersalurinn sem þú þarft nokkurn tíma á að halda. Það er líka staðurinn þar sem þú getur spilað við hliðina á Team PokerStars Pro – þar á meðal Daniel Negreanu og Joe Hachem.
Við bjóðum líka inngöngumót (e. satellites) að mörgum pókermótaröðum og viðburðum, þar á meðal European Poker Tour, PokerStars Caribbean Adventure og World Series of Poker*. Þetta eru mótin þar sem pókerspilarar verða milljarðamæringar - og þú getur einnig tekið þátt í atburðunum með PokerStars-inngöngumótum.
Hér er skrá yfir stærstu viðburðina á PokerStars. Smelltu á nafn viðburðarins til að fá nánari upplýsingar.
Á netinu |
Í beinni |
Á netinu
Sunday Million
Sunnudagar á PokerStars snúast um stórmót með háum verðlaunum og það er ekkert netpókermót stærra en Sunday Million. Þessi vikulegi viðburður er með tryggðan verðlaunapott upp á $1.500.000 flestar vikur, en yfirleitt enn meira en það! Hamagangurinn hefst á hverjum sunnudegi klukkan 16:30 ET (bandarískur austurstrandatími) og innkaupsgjaldið er $215. Inngöngumót eru í gangi alla vikuna, sem þýðir að þú getur unnið þér inn þátttökurétt fyrir örfáa dali.
Sunday Warm-Up
Með sinn trygga verðlaunapott upp á $750.000 er Sunday Warm-Up á PokerStars besta aðferðin til að hefja stærsta mótadag vikunnar. Þú getur keypt þig inn beint fyrir $215 eða unnið þér inn sæti með einhverju inngöngumótanna sem eru í gangi alla vikuna fyrir allt frá aðeins $3 eða 400 spilarapunkta (FPP). Sunday Warm-Up hefst klukkan 13:00 ET alla sunnudaga..
World Championship of Online Poker (WCOOP)
Hið árlega Heimsmeistaramót í netpóker á PokerStars, eða PokerStars WCOOP, er stærsta netpókermótaröðin í heiminum. Árið 2009 fóru fram yfir 45 mismunandi viðburðir í tengslum við mótaröðin og tryggður verðlaunapottur var $40,000,000. Mótaröðin endar svo ár hvert með einum Aðalviðburði, eða Main Event – mótið sem allir sem taka póker alvarlega ætla sér að vinna. Meistari ársins 2009 varð Jovial Gent og sigraði hann samkeppni sem samanstóð af 2.144 spilurum og tryggði sér með því armbandið fræga og verðlaunaféð sem var veitt fyrir fyrsta sætið, en það voru $1.715.200! Farðu inn á WCOOP síðuna til að kynna þér þetta betur.
Spring Championship of Online Poker (SCOOP)
Spring Championship of Online Poker - All Stakes (SCOOP) veitir spilurum af öllum stigum færi á að keppa á hinu stóra sviði og tækifæri á að vinna háar fjárhæðir. Það skiptir engu máli á hvaða stigi þú spilar því öll mótin í mótaröðinni fara fram með breiðu úrvali innkaupsmöguleika. Hvort sem það er lág-bita Razz, eða hákarla Án-takmarks Hold’em, þá er viðburður í boði sem hentar þér. Til að kynna þér allt um málið, þá viljum veið benda þér á að kíkja á SCOOP síðuna.
WCP (World Cup of Online Poker)
Kepptu fyrir land þitt í World Cup of Poker á PokerStars! Keppnin hefst á netinu þar sem keppendur berjast í röð fríaðgangsmóta um að komast í landsliðið og keppa síðan með löndum sínum um sæti í úrslitum. Leikurinn færist síðan „niður á jörðina“ í sjónvarpsmót þar sem löndin sem öðlast hafa þátttökurétt keppa um titilinn sem við köllum einfaldlega Heimsmeistaratitilinn. Úrslitaviðureignin í WCP VI fór fram á Bahamaeyjum, sem hluti af PokerStars Caribbean Adventure og þar bar Kínverska-Taipei sigur af hólmi.
WBCOOP (World Blogger Championship of Online Poker)
Ef þú spilar póker og ert með eigin bloggsíðu er World Blogger Championship of Online Poker á PokerStars rétta mótið fyrir þig. Þetta er mót þar sem bloggarar hvaðanæva að úr heiminum fá tækifæri til að keppa í póker um vegleg verðlaun, þar á meðal er þátttaka í sjónvarpsviðburðum.
Í beinni
PokerStars stendur einnig fyrir eftirfarandi borðapókermótum (e. live events).
EPT (European Poker Tour)
EPT er fremsta pókermót Evrópu. Það hefur stöðugt vaxið að styrkleika frá því að það var fyrst haldið árið 2004 og dregur að sér bestu spilarana víðsvegar að úr heiminum. Nicolas Chouity frá Líbanon vann Monte Carlo Grand Final árið 2010 og fékk í vasann veðlaunafé upp á €1.700.000 sem og meistaratitilinn. Kíktu á EPT síðuna fyrir frekari upplýsingar.
APPT (Asia Pacific Poker Tour)
Markverðasti atburður þessa heimshluta á pókersviðinu, APPT, fer fram á stöðum eins og Macau, Manila og Seoul og kemur þannig asískum póker rækilega á kortið. Nú er fjórða leiktíðin að hefjast og milljónir dala hafa þegar verið greiddar út í verðlaunafé hingað til. Aaron Bent er núverandi meistari, eftir að hann vann Grand Final viðureignina og fékk fyrir það AUD $594.000, árið 2009.
LAPT (Latin American Poker Tour)
Latin American Poker Tour er tækifæri þitt til að heimsækja lönd eins og Kosta Ríka, Chile, Úrúgvæ og Argentínu til að spila póker og keppa um háar fjárhæðir. Yfir 1.000 spilarar hófu fyrstu leiktíðina, þar sem Julien Nuijten, Valdemar Kwaysser og Jose Miguel Espinar unnu allir til verðlauna. Nánari upplýsingar eru á síðunni LAPT.
PCA (PokerStars Caribbean Adventure)
PCA er einstæður viðburður. Mótið er haldið árlega á lúxusdvalarstaðnum Atlantis Paradise Island á Bahamaeyjum. Þetta er stærsta borðapókermótið utan Las Vegas og meistaratitillinn einhver sá eftirsóttasti í greininni. Í janúar árið 2009 vann hinn 19 ára gamli Harrison Gimbel Aðalviðburðinn og fékk fyrir það hina mjög svo rausnarlegu upphæð upp á $2.200.000 .
RPS (Russian Poker Series)
Russian Poker Series sem PokerStars kostar er stærsta borðapókermótið sem fram fer í landinu. Leikstaðir í mótaröðinni eru t.d. í Kænugarði og Ríga og þar geturðu séð marga af bestu spilurum svæðisins berjast um að verða næsti verðlaunahafi – þar með talinn liðsmann Team PokerStars Pro, Alex Kravchenko. Kíktu á síðuna Russian Poker Series og kynntu þér hana betur.
ANZPT (Australia New Zealand Poker Tour)
Ef þig hefur einhvern tíma langað að heilsa upp á andfætlinga okkar er ANZPT góð ástæða til þess. Dvalið er bæði í Ástralíu og á Nýja-Sjálandi svo að tilvalið er að njóta sólar og sælu þegar hvíld gefst frá spilaborðunum. Skoðaðu síðuna ANZPT til að sjá hvernig þú gætir komist inn á næsta mót með PokerStars-inngöngumótum.
UK & Ireland Poker Tour (UKIPT)
Pókerheimurinn í Bretlandi og á Írlandi ere inn sá heitasti í heiminum dag og nú hefur hann fengið sína eigin mótaröð til að halda í við vinsældirnar. UKIPT býður spilurum upp á að stoppa við á mörgum af bestu áfangastöðum svæðisins, þar með töldum Galway, Nottingham, Brighton og Dublin. Grand Final viðureignin fer svo fram í London og þessi mótaröð dregur að sér alla bestu spilarana sem Bretland og Írland bjóða upp á, ásamt mörgum af stærstu stjörnum pókerheimsins. Tryggðu þér þátttökurétt á UKIPT nú þegar.
Italian Poker Tour (IPT)
Italian Poker Tour laðaði að sér gríðarlegan fjölda spilara á fyrsta tímabilinu sínu og mótaröðin er ein sú sterkasta á evrópsku mótasenunni. Stórkostlegir keppnisstaðir eins og San Remo og Feneyjar, sem og stutt stopp í slóvenska pókerbænum Nova Gorica, gera þetta líka að fallegu ferðalagi. Þar sem mótaröðin býður upp á þétta mótadagsskrá og há peningaverðlaun, þá dregur IPT að sér alla bestu spilara Evrópu.
Estrellas Poker Tour
Estrellas Poker Tour á PokerStars er röð móta í beinni sem fara fram víða um Spán og ná svo hámarki í Grand Final í Barcelona. Þessi mótaröð hefur hrifið með sér helstu pókerspilara Spánar og hún gefur einnig gott færi á að komast aðeins í sólina til að spila póker um háar fjárhæðir í afslappandi umhverfi þessa skemmtilega lands.
France Poker Series (FPS)
Hið menningarríka og sögufræga land Frakkland er vettvangur PokerStars mótaraðarinnar France Poker Series, röð viðburða sem ætlað er að höfða til allra Frakka. Mótaröðin teygir sig vítt og breitt um þetta stórmerkilega land og kemur spilurum í nokkurskonar „Tour de France“ gír, sem nær svo hámarki á lokamótinu, eða Grand Final, sem fram fer í París.
Portugal Poker Series (PPS)
Portugal Poker Series heldur uppi spennustiginu í pókerheiminum á þessum hluta hnattarins og fara fram viðburðir um allt landið. Undanmót eru þegar farin að rúllar og þar færðu tækifæri til að reyna að verða næsti stóri sigurvegarinn í það sem kallast besta pókermótaröðin í beinni sem fram hefur farið í Portúgal. Kítu á Portugal Poker Series síðuna til að kynna þér þetta betur.
Belgian Poker Series (BPS)
Þetta er ung og spennandi mótaröð sem stoppar við í mörgum af virðulegustu spilasölum Belgíu og í hverju stoppi fer fram aðalviðburður ásamt fjöldanum öllum af hliðarmótum. Viðburðirnir í Belgíu munu draga að sér alla sbestu spilara álfunnar og þar á meðal verða liðsmenn Team PokerStars Pro, sem allir ætla sér að keppast um að ná í þær hundruði þúsunda evra sem verða í boði. Til að fá allar upplýsingar um þennan viðburð þá skaltu fara á síðuna fyrir Belgian Poker Series.
PokerStars Macau
Spilaðu póker í Macau, í hinum stórglæsilega spilasal PokerStars Macau, sem er staðsettur í Casino Grand Lisboa í miðborg Macau. Þetta er stærsti sérútbúni pókersalurinn í Asíu og heimavöllur fyrir fjöldan allan af virðum viðburðum, en þar á meðal er t.d. Macau Poker Cup. Þar fer einnig fram Macau-hluti hins heimsþekkta PokerStars Asia Pacific Poker Tour.
Við erum einnig með inngöngumót á eftirfarandi viðburði:
WSOP (World Series of Poker*)
World Series of Poker* Main Event er enn virtasta sjónvarpspókermótið sem boðið er upp á. Með margra milljóna dollara verðlaunapott og heimsmeistaraarmband að keppa að er þetta mót sem gerir spilara að stórstjörnum. PokerStars kemur fleiri spilurum á aðalmót WSOP* en öll önnur vefsvæði samanlögð og margir spilarar okkar hafa unnið til geysihárra peningaverðlauna – þar á meðal Chris Moneymaker og Greg Raymer í Team PokerStars Pros.
Athugið að sumir tenglarnir á þessu svæði opna ensku útgáfuna af PokerStars
í nýjum glugga.




