Play Poker - Download Now

Pókerleikir

Play Poker Games - Holdem Games - Omaha Games - Stud GamesÁ PokerStars getur þú notið þess að spila alla uppáhalds pókerleikina þína með þúsundum annarra spilara, allan sólarhringinn. Helsti kosturinn við þetta fyrir þig er að þú getur alltaf komið að þéttskipuðum spilaborðum í næstum hvaða leik sem er, þar sem spilað er á þeim takmörkum og bitum sem þú vilt spila.

Hér á eftir er svo listi með þeim leikjum sem eru í boði á PokerStars:

Texas Holdem

Hægt að spila með takmarki, pott-takmarki og án-takmarks og Texas Hold'em er sá leikur sem World Series meistararnir okkar (Tom McEvoy, Chris Moneymaker, Greg Raymer, Joe Hachem og Joe Cada) spiluðu þegar þeir unnu sína titla. Án efa vinsælasti leikurinn í pókerheiminum síðastliðin ár og við bjóðum upp á hundruð hring-leiks borð sem eru stöðugt í gangi, sem og upp á mörg hundruð mót, í hverri viku.

Omaha High

Omaha er svipaður og Texas Hold’em á suma vegu, en í leiknum fá spilarar gefin fjögur holuspil og þurfa þeir að mynda sína fimm-spila pókerhönd með nákvæmlega tveimur af holuspilunum sínum og þremur af sameignarspilunum í borði. (Í Texas Hold’em má höndin samanstanda af hvaða fimm spilum sem er af þeim sem gefin hafa verið, hvort sem þau voru í borði eða holuspil.)

Omaha High er vinsælt pókerafbrigði í Evrópu, þá sérstaklega með pott-takmarki. PokerStars býður sínum spilurum um allan heim upp á Omaha bæði sem takmarks og pott-takmarks leik.

Omaha Hi/Lo

Omaha Hi/Lo, eða Omaha Átta (spilað þá með „átta eða betra“ skilyrðingu á lágspilahöndina), er í boði sem takmarks, pott-takmarks og án-takmarks leikur.

Seven Card Stud

Þar til Texas Hold’em kom þjótandi fram á sjónarsviðið var Seven Card Stud, eða Sjöspila-foli, vinsælasti pókerleikurinn. Þú getur fundið mörg afbrigði af Seven Card Stud á PokerStars spiluð á allskonar borðum.

Seven Card Stud Hi/Lo

Skiptipotts útgáfan (e. split pot version) af Stud, Seven Card Stud Hi/Lo bíður svo upp á nýjan vinkil á þessari gömlu klassík. Leikurinn er í boði sem takmarks leikur og ef þér finnst Seven Card Stud eða Omaha Hi/Lo skemmtilegir þá viljum við mæla með að þú kíkir á Seven Card Stud Hi/Lo borðin.

Razz (7 Card Stud Low)

Ef þér finnst þú bara aldrei fá hönd þá gæti Razz verið leikurinn fyrir þig. Þessi útgáfa af sjöspila „lowball“ gefur þér færi á að reyna að fá þá allra lélegustu fimm-spila hönd sem er í boði og samt vinna.

Triple Stud

Leikur sem skiptist á milli þriggja ólíkra Takmarks-Stud leikja, Stud High, Razz og Stud Hi /Lo (átta hendur af hverjum leik í umferðinni), gerir Triple Stud að mjög spennandi afbrigði fyrir alla áhugamenn um Stud leikinn.

HORSE & 8-Game Mix (Blandaðir leikir)

HORSE ( Hold'em, Omaha, Razz, Seven Card Stud, Seven Card Stud Eight-or- Better) er samansafn af leikjum sem gefa þér færi á að sanna hversu fjölhæfur pókerspilari þú ert í raun og veru. Ef þér leiðist stundum við að spila alltaf sama leikinn þá bendum við þér á að prófa HORSE, þar sem virkilega reynir á hæfileikana. Við bjóðum líka upp á svokallað 8-Game Mix, sem eru sömu spil og í HORSE, nema búið er að bæta við það umferðum af Án-takmarks Hold’em, Pott-takmarks Omaha og 2-7 Þrídregið (e. Triple Draw).

Five Card Draw

Five Card Draw er leikurinn sem flest okkar ólumst upp við að spila við eldhúsborðið. Þessi sígildi leikur er svo rótgróinn að hann fer með þig aftur til upphafsára pókersins og hver veit nema að þú getir grætt smá pening í leiðinni.

2-7 Triple Draw & 2-7 Single Draw

Tvistur til sjöa þrídregið og Tvistur til sjöa endregið eru „lowball“ leikir þar sem þú átt að reyna fá lægstu höndina. Í 2-7 leikjum eru aðeins aðrar reglur um hvernig er lesið úr höndunum og þú ættir að lesa þig til um þær - áður en þú byrjar að spila leikinn!

Badugi

Badugi er dragleikur í póker þar sem takmarkið er að reyna að mynda sem lægsta hönd með spilum af ólíkri sort, úr þeim fjórum spilum sem þú færð gefin. Í Badugi eru nokkrar skemmtilegar reglur sem eru öðruvísi en í flestum pókerleikjum, svo þér er vissara að kynna þér þær vel áður en þú ferð og spilar leikinn!

Vertu svo viss um að kynna þér síðurnar okkar um Pókerreglurnar og Röðun pókerhanda ef þú ert í einverjum vafa um hvernig einhverjir þessara leikja hér að ofan eru spilaðir.

Um okkur | Skilmálar og skilyrði | Öryggi | Meðferð persónuupplýsinga | Svæðisyfirlit
Höfundarréttur © 2001- , PokerStars. Allur réttur áskilinn. Rational Entertainment Enterprises Limited, 33-37 Athol Street,
Douglas, IM1 1LB, Isle of Man. Leyfi endurnýjað 1. ágúst, 2010. Netveðmál eru háð reglum á eynni Mön.