Five Card Draw
Five Card Draw, 5-spila drag, er leikurinn sem margir ólust upp við að spila við eldhúsborðið. Í þessum leik þá er markmiðið að geta myndað bestu fimm spila höndina eftir að hafa dregið einu sinni. Líkt og með Hold‘em, þá er þetta leikur sem er auðlærður en erfitt að ná fullum tökum á.
Reglur í Five Card Draw
Draw, eða drag-leikir, eru spilaðir með blindfé, alveg eins og flopp-leikir. Hver spilari fær gefin fimm spil á grúfu, eða holuspil. Sá sem situr næst á eftir stóra-blind getur valið að pakka (e. fold), kalla/sjá að jöfnu (e. call), eða að hækka (e. raise). Sögnin heldur svo áfram réttsælis um pókerborðið þar til boðum er lokið í þeirri lotu.
Þegar fyrstu boðlotu (e. betting-round) er lokið þá er dregið. Það þýðir að hver spilari velur spil sem hann vill henda (ef einhver eru) með því að smella á þau. Ef smellt er aftur á spil sem hefur verið valið þá er það afvalið. Spilum er svo hent og ný dregin réttsælis um borðið. Þegar komið er að þér að henda spilum þá þarftu að ýta á hnapp sem staðfestir að þú viljir henda þeim spilum sem þú hefur valið.
Eftir að spil hafa verið dregin þá hefst önnur boðlota, sem hefst hjá þeim er situr fyrstur vinstra megin við gjafarahnappinn og er enn með í spilinu. Atburðaröðin er því svona í spilinu:
- Hver spilari fær fimm spil
- Boðlota #1, sem hefst þá vinstra megin við stóra-blind
- Dregið
- Boðlota #2, sem hefst þá vinstra megin við hnappinn
- Hólmurinn (e. showdown, ef þarf á að halda)
Í drag-leikjum þá getur það gerst að það þurfi að nota fleiri spil en eftir eru í stokknum. Þegar það gerist þá er spilum sem hefur verið hent og restinni af stokknum stokkað saman í nýjan stokk og spilið heldur svo áfram með þennan nýja stokk. Fyrir frekari upplýsingar um endurstokkun í drag-leikjum þá bendum við á síðuna okkar Reshuffling the Deck.
Hólmurinn – Skorið úr um sigurvegarann
Spilarinn með bestu fimm spila höndina vinnur pottinn. Eftir að potturinn hefur farið til þess sem var með bestu höndina þá getur nýr leikur af Five Card Draw hafist.
Ef tvær eða fleiri hendur eru jafnar þá skiptist potturinn jafnt á milli þeirra. Spilasortir raðast ekki í neina styrkleikaröð og eru því ekki notaðar til að skera út um hver vinnur pottinn. Þér er alltaf velkomið að spila á ókeypis pókerborðunum á PokerStars til að skerpa pókerhæfileikana áður en þú reynir þig í að spila peningapóker.




