Deuce to Seven Lowball (Single Draw)
Lowball er tegund af dragpóker. Spilið hefur verið spilað víða, í spilasölum um allan heim, um árabil og fer það vaxandi í vinsældum eftir því sem fólk fer að kynna sér fleiri spilaleiki en Hold’em. Í Lowball leikjum er besta lága höndin verðlaunuð, sem er andstætt því sem þekkist í leikjum einsog Hold‘em og Stud þar sem hæsta höndin vinnur. Á PokerStars er hægt að spila afbrigði af Lowball sem kallast Tvistur til sjöa Lowball (Eindregið, eða „Single Draw“), en það spil gengur einnig undir nafninu Kansas City Lowball.
Hvernig skal spila
Blindir
Í Lowball er notast við þvinguð boð (e. forced bet), eða svokallaða blinda. Þá þarf spilarinn sem situr vinstra megin við þann sem gefur að leggja út litla-blind og sá sem er honum svo á vinstri hönd leggur út stóra-blind. Litli-blindur er venjulega hálfur stóri-blindur. Í Lowball er oft einnig notast við forskot (e. ante) sem er lágt skylduboð sem allir þurfa að skjóta í pottinn, í viðbót við blindféð, áður en er gefið.
Gjöfin
Hver spilari fær gefin fimm spil á grúfu. Þá er ein lota af boðum þar sem þú getur kallað/séð að jöfnu (e. call), hækkað ( e. raise) eða pakkað (e. fold). Spilurum, sem enn eru með í hendinni eftir fyrstu boðlotuna, býðst nú að draga spil. Það þýðir að þú getur reynt að bæta höndina með því að henda einhverjum spilum og draga svo ný spil í stað þeirra. Smelltu á spilin sem þú vilt losna við og ýttu svo á „Discard“ hnappinn. Þú mátt henda öllum fimm spilunum ef þú vilt. Ef þér finnst þú hafa sterka hönd þá getur þú valið að standa og velur „Stand Pat“. Það þýðir að þú kjósir að halda öllum spilum sem þú ert með. Þegar allir sem enn eru með hafa lokið við að draga þá hefst ný boðlota þar sem spilarar geta boðið eða pakkað. Ef engin boð koma fram þá geta spilarar einnig skoðað (e. check). Ef fleiri en einn spilari er enn með á þessu stigi er komið á hólminn ( e. showdown) þar sem sá spilari sem hefur bestu höndina tekur pottinn.
Í 2-7 vinna raðir (e. straight) og litur (e. flush) gegn lágspilahöndinni þinni og ásar eru alltaf hæstu spilin. Besta höndin er því: 7, 5, 4, 3, 2. Hendur í 2-7 raðast svo (ekki tæmandi listi) frá þeirri veikustu (#1, sem sjaldnast vinnur pott) í þá sterkustu (#16, rærnar (e. nuts)):
- J, 7, 4, 3, 2 (allt í sömu sort - litur)
- 8, 7, 6, 5, 4 (röð)
- 7, 6, 5, 4, 3 (lægri röð)
- 5, 5, 5, 6, 3
- 2, 2, 7, 6, 5
- A, 9, 6, 4, 2
- A, 8, 7, 4, 2
- A, 5, 4, 3, 2 (ekki röð – ás hæstur)
- K, J, 8, 7, 4
- T, 7, 5, 4, 3
- T, 6, 5, 4, 3
- T, 6, 5, 4, 2
- 9, 7, 6, 4, 3
- 8, 6, 4, 3, 2
- 7, 6, 4, 3, 2
- 7, 5, 4, 3, 2
Grunnurinn
Í Lowball er það þannig að þær hendur sem vanalega eru sterkar, í leikjum eins og Hold‘em, þær eru veikar. Pör, þrennur (3 eins), raðir og litir eru alltaf sterkar hendur og eru því lítils virði í Lowball leikjum. Ef hönd inniheldur ekkert par þá tapar sá sem er með hæsta spilið. Til dæmis, ef spilari er með 9-6-5-2-3, þá vinnur sú hönd 10-9-6-2-3. Ásar eru alltaf hæstir og þess vegna er ekki gott að hafa þá. Það þýðir að spilari sem er með J-9-7-3-2 á hendi hann vinnur andstæðing sem er með A-9-7-3-2. Besta mögulega höndin er 7-5-4-3-2 af blönduðum sortum. Þetta er af því að höndin er lág, enginn ás er í henni, engin röð og enginn litur. Það er einmitt af þessu sem spilið dregur nafn sitt 2-7 Lowball.
Í drag-leikjum getur það gerst að fleiri spil þurfi en eru eftir í stokknum. Ef það gerist þá er spilunum sem hefur verið kastað stokkað aftur saman við restina af stokknum og spilinu haldið áfram með þennan nýja stokk. Fyrir frekari upplýsingar um endurstokkun í drag-leikjum þá bendum við á síðuna okkar um slíkt Reshuffling the Deck.
Horðu á myndskeiðið hér fyrir neðan til að fá nokkur Tvist-til-sjöu Lowball ráð frá meðlimum í Team PokerStars Pro, þeim Chad Brown, Daniel Negreanu, Lee Nelson, Gavin Griffin og Steve Paul Ambrose.
Horfa á Tvist til 7 á PokerStars.tv
Ef þér finnast svo Lowball leikir skemmtilegir þá bendum við auðvitað á að PokerStars býður einnig upp á Tvist til sjöu Þrídregið.
Sjá einnig:




