pokercasinosports

HORSE (Blandaður leikur)

HORSE er reyndar skammstöfun sem lýsir samsetningu fimm pókerleikja:

Bakgrunnur HORSE

HORSE er eitt fjölmargra vinsælla blandaðra leikjaafbrigða. Í stórum peningaleikjum í spilahöllum uppi á landi komast spilarar oft að samkomulagi um að spila blöndu pókerleikja í stað þess að spila bara einn leik. Þetta dregur úr forskoti sem sérfræðingar í einum leik hafa og dregur fram breiddina sem spilarinn gæti búið yfir í fleiri útgáfum af póker. Mörgum þykir sem HORSE og aðrir blandaðir leikir séu besti mælikvarðinn á raunverulega pókerhæfileika spilarans. Leikurinn er líka hluti af WCOOP, World Championship of Online Poker, sem er haldið árlega á PokerStars.

HORSE spilaður

HORSE er spilaður sem ein umferð af hverjum leik sem mynda leikinn. Hann byrjar með Fixed Limit Hold'em, skiptir svo í Fixed Limit Omaha Hi/Lo, Razz (Seven Card Stud Low), Seven Card Stud (High eingöngu) og að lokum í Seven Card Stud Hi/Lo. Þegar Seven Card Stud Hi/Lo lotunni lýkur færist leikurinn aftir í Fixed Limit Hold'em og svo áfram koll af kolli. Þú getur séð í hvaða leik er verið að gefa með því að kíkja á efsta spjaldið í borðglugganum.

Þegar skipt er á milli Omaha Hi/Lo í Razz er hnappurinn frystur. Þannig, þegar leikurinn skiptist svo aftur í Hold'em (eftir Seven Card Stud Hi/Lo), sleppur enginn við blindann eða þarf að borga aukalegt blindfé.

Allir hlutar leiksins HORSE eru spilaðir með Fixed Limit - það eru engir Pot Limit eða No Limit leikir. Takmörkin (svo sem $5/$10) haldast þau sömu yfir allan hringinn og þú spilar $5/$10 Fixed Limit Hold'em, svo $5/$10 Fixed Limit Omaha Hi/Lo o.s.frv.

Samantekt

Spilun HORSE er frábær leið til að þróa með sér kunnáttu í mörgum leikjum og þú brýtur líka upp einhæfnina sem fylgir því að spila einn og sama leikinn í einni spilasetu (e. session). Við hvetjum þig til að kynna þér hvern einstakan hluta leiksins fyrst svo þú vitir hvað er að gerast og skella þér svo út í HORSE leikina.

Lærðu að spila HORSE ókeypis

Ef þú þekkir ekki HORSE mælum við með því að þú prófir leikinn ókeypis fyrst, til að fá tilfinningu fyrir því hvernig leikurinn spilast. Þér er alltaf velkomið að spila á ókeypis pókerborðunum okkar á PokerStars, svo þú getir fínpússað hæfileikana áður en þú byrjar að spila raunpeningapóker.

Einnig, ef þú vilt spila önnur afbrigði af blönduðum leikjum, mælum við með að þú kíkir á Hold’em/Omaha leikina okkar, eða 8-Game Mix. Þessir leikir eru skemmtileg tilbreyting við hinn sívinsæla Texas Hold’em leik og þeir eru einnig í boði undir hlutanum um pókermót hjá okkur.

Til viðbótar við HORSE bjóðum við líka upp á mörg önnur pókerafbrigði. Skoðaðu síðuna okkar um pókerleiki til að kynna þér málið.