Play Poker - Download Now

Omaha Póker

Omaha Poker Game


Omaha poker er spennandi spilaafbrigði sem þróað var úr Texas Hold’em . Hver leikmaður fær gefin fjögur einkaspil, svokölluð holuspil, sem hann einn má sjá og nota. Fimm sameignarspil eru síðan gefin í borð svo allir sjái. Hver leikmaður skal svo nota þrjú spil af þessum fimm í borðinu og tvö af sínum holuspilum til þess að mynda sem sterkasta fimm spila pókerhönd. Mundu að í Omaha þá verður þú að nota aðeins og eingöngu tvö af þínum fjórum spilum saman með aðeins og eingöngu þremur af fimm spilum í borði. Skoðaðu síðuna okkar um styrkleikaröðun handa í Omaha á síðunni pókerhendur .

Útfærslur á ýmsum Omaha Hi/Lo leikgerðum

  • Takmarks Omaha : Í gildi eru ákveðin takmörk á boð í pottinn, bæði á heildarupphæð sem og í hverri boðlotu fyrir sig.
  • Pott-takmarks Omaha : Boð takmarkast við heildarupphæðina sem þegar er í pottinum.
  • Án-takmarks Omaha : Leikmanni er frjálst að bjóða alla þá spilapeninga sem hann á.

Hér að neðan er svo að finna almennar útskýringar á því hvernig spila skal Omaha póker. Grunnreglur allra spilaútfærslna Omaha eru þær sömu nema hvað uppbygging hækkana getur verið misjöfn á milli afbrigða. Frekari upplýsingar um þessar útfærslur er svo að finna hér á eftir.

Hvernig spila skal Omaha póker

Hold'em Button Í Omaha er notast við svokallaðan gjafarahnapp (oft kallaður bara hnappurinn eða takkinn) sem gefur til kynna hver situr í sæti gjafarans hverju sinni í leiknum sem er í gangi. Áður en leikur hefst skal sá leikmaður er situr næst réttsælis við hnappinn leggja út svonefndan litla-blind, sem er fyrsta skylduboðið í leiknum. Næst litla-blind, réttsælis aftur, situr stóri-blindur og skal hann leggja út upphæð sem er jafnan tvöföld upphæð litla-blinds. Upphæðin sem blindir leggja út er misjöfn, allt eftir því hversu mikið er undir í leiknum í bitum (e. "stakes") og hvernig uppbyggingu boða skal háttað í leiknum sem spilaður er.

Í leikjum með takmarki almennt gildir það að stóri-blindur er jöfn upphæð lágmarksboðs og litli-blindur er yfirleitt hálf upphæð stóra-blinds, en það getur reyndar verið misjafnt á milli leikja. Til dæmis, í Takmarksleik sem er með undir $2/4 þá er litli-blindur $1 og stóri-blindur$2. Í Takmarksleik sem er með $15/$30 undir þá er litli-blindur $10 en stóri-blindur er $15.

Í svokölluðum „Pott-takmarks“ leikjum og leikjum „Án-takmarks“ (e. Pot-Limit, No-Limit) vísar nafnið á leiknum til upphæðarinnar á blindum (t.d. spilast $1/$2 Hold‘em þannig að blindir leggja þá út $1 fyrir litla-blind og $2 fyrir stóra-blind).

Nú fær svo hver leikmaður holuspilin sín fjögur. Boðumferðin gengur réttsælis um borðið og hefst á þeim er „situr við byssuhlaupið“ (sá leikmaður sem er í sætinu réttsælis við stóra-blind).

Boðmöguleikar leikmanns

Í Omaha, líkt og í öðrum pókerafbrigðum, getur leikmaður notað sagnirnar að „pakka“ (fold), „skoða“ (check), „bjóða“ (bet), „jafna“ (call) og „hækka“ (raise). Hvaða sagnir hann getur svo notað sérstaklega í hvert skipti ræðst af því hvað leikmenn sem hafa sagt á undan honum hafa gert. Allir leikmenn geta alltaf pakkað, það að gefa frá sér spilin og reyna ekki að vinna pottinn í þeirri hönd. Ef enginn leikmanna hefur komið með nýtt boð í pottinn er leikmanni heimilt að annaðhvort skoða (það að bjóða ekki þá þegar, en jafnframt að halda enn spilunum), eða hann getur boðið. Ef einhver leikmanna hefur boðið þá geta þeir sem segja á eftir honum pakkað, jafnað (jafnað það sem boðið hefur verið) eða hækkað (þá býður sá leikmaður enn hærri upphæð í pottinn en þegar hefur verið gert).

Forleikurinn (e. „Pre-Flop“)

Þegar leikmaður hefur skoðað holuspilin sín hefur hann tækifæri til að spila með því að jafna við stóra-blind, eða með því að hækka boðið (jafna stóra-blind að auknu lágmarksboði). Leikmaður á vinstri hlið stóra-blinds á ”opna” sögn, þ.e. hann getur pakkað, jafnað eða hækkað boð. Til dæmis, ef stóri-blindur er $2 þá kostar það $2 fyrir leikmanninn að jafna og $4 hið minnsta að hækka boð. Sögnin gengur svo áfram réttsælis um borðið.

Athugið: Uppbygging boða er mismunandi á milli einstakra afbrigða og mismunandi pókerleikja. Útskýringar fyrir hvert pókerafbrigði og uppbyggingu boða (e. „betting-structure“) einsog fyrir Takmarks Omaha, Án-takmarks Omaha og Pott-takmarks Omaha er hægt að nálgast hér að neðan.

Boðumferðin heldur svo áfram uns allir sem enn eru með (s.s. ekki þeir sem hafa pakkað) hafa jafnað það sem boðið hefur verið í pottinn.

Floppið (e. „The Flop“)

Eftir að fyrstu umferð boða er lokið leggur gjafarinn svokallað „flopp“ í borðið, spil sem allir sjá á. Floppið er fyrstu þrjú spil sameignarspilanna, spil sem allir leikmenn sem enn eru með geta notað sér í hag. Boðumferðin hefst á þeim leikmanni (sem enn er með) er situr fyrstur réttsælis við hnappinn. Sömu reglur gilda um boð í þessari umferð og voru í gildi í forleiknum. Ef hinsvegar enginn hefur boðið þá er leikmanni heimilt að skoða (e. „check“), þ.e. hann gerir ekkert nema bíður og sér hvað hinir ætla að gera og sögnin færist áfram réttsælis á næsta mann sem enn er með í leiknum. Í Takmarks Omaha eru öll boð á þessu stigi (á floppinu) í hlutföllum við lágmarksveðmálið (t.d. $2 í leik sem er $2/$4).

Fléttan (e. The Turn)

Þegar boðum er lokið eftir floppið, er fléttuspilið svokallaða gefið upp í borðið. Fléttan er fjórða sameignarspilið í Omaha og hefst umferðin á því að fyrsti leikmaður, sem enn er með, réttsælis við hnappinn segi. Í Takmarks Omaha eru öll boð og hækkanir á þessu stigi leiksins í hlutfalli við upphæð stóra-blinds (t.d. $4 í $2/$4 leik).

Fljótið (e. The River)

Þegar boðum í fléttuspilsumferðinni er lokið er fljótið svokallaða gefið upp í borðið. Fljótið er fimmta og síðasta sameignarspil leikmanna í Omaha. Boð hefjast hjá þeim leikmanni er situr fyrstur réttsælis við hnappinn.

Hólmurinn (e. „The Showdown“)

Ef fleiri en einn leikmaður er enn með í leik á þessu stigi, eftir að boðlotunni er lokið skál sá er bauð eða hækkaði síðast sýna spil sín fyrstur. Ef ekkert var boðið eða hækkað í lotunni skal sá er næst situr réttsælis við hnappinn sýna sín spil fyrst. Leikmaðurinn með bestu fimm spila pókerhöndina vinnur pottinn. Munið: Í Omaha skulu leikmenn aðeins og eingöngu notast við tvö af fjórum holuspilum saman með aðeins og eingöngu þremur af fimm sameignarspilum í borðinu. Ef einhverjir leikmenn hafa eins hendur skal pottinum skipt jafnt á milli aðilanna sem hafa bestu höndina.

Eftir að pottinum hefur verið komið í réttar hendur hefst ný umferð af Omaha. Hnappurinn færist réttsælis til hægri á næsta leikmann.

Takmarks, Án-takmarks eða Blandað Omaha

Reglur í Omaha eru þær sömu hvort heldur sé spilað Takmarks eða Án-takmarks, með nokkrum undantekningum þó:

  • Takmarks Omaha

    Boð í Takmarks Omaha takmarkast á fyrirfram ákvarðaðan og uppbyggðan hátt. Í forleiknum áður en gefið er (e. pre-flop) og á floppinu eru öll boð og hækkanir takmörkuð við upphæð stóra-blinds. Á fléttunni og fljótinu (turn og river) tvöfaldast allar upphæðir boða og hækkana. Í Takmarks Omaha eru hverjum leikmanni heimil allt að fjögur boð í hverri umferð sagna. Þar er meðtalið (1) boð, (2) hækkun, (3) endurhækkun og (4) þak (e. cap), sem er lokahækkun.

  • Pott-takmarks Omaha

    Lágmarksboð í Omaha er jafnt upphæð stóra-blinds, en hámarksboð leikmanns takmarkast við að jafna upphæðina sem þegar er í pottinum.

    Lágmarkshækkun: Upphæð hækkunarinnar þarf að vera að minnsta kosti jafnhá hverri fyrri hækkun eða boði í umferðinni. Til dæmis ef leikmaður býður $5 fyrst þá þarf sá næsti sem ætlar að hækka að hækka um boðið um að minnsta kosti $5 til viðbótar (samtals því $10 boðnir út).

    Hámarkshækkun: Er stærðin á pottinum það skiptið, sem er skilgreindur sem allt sem þegar hefur verið lagt út í pottinn sem og allt það sem boðið hefur verið í yfirstandandi umferð en ekki hefur verið ýtt í pottinn og að auki sú upphæð sem sá sem er að segja skal jafna áður en hann hækkar boðið.

    Tökum dæmi: Ef þegar eru $100 í pottinum og enginn hefur boðið eða hækkað áður en kemur að leikmanninum að segja, þá er hámarksupphæð sem leikmaður getur hækkað um $100. Eftir að hann hefur boðið $100 þá skal næsti leikmaður réttsælis segja. Sá leikmaður getur þá pakkað, jafnað $100, eða hækkað það sem hann vill, um hvaða upphæð sem honum sýnist sem fellur á milli lágmarksboðs ($100 í þessu tilviki) og hámarksboðs (sem er þá orðið $400, því hann þarf fyrst að jafna gilt boð í pottinn sem er $100 og er potturinn þá kominn í $300 og hækkunin þá $300 þar að auki, sem gerir $400 í heildina).

    Í Pott-takmarks Omaha er ekkert þak („cap“) á þeim fjölda hækkana sem eru heimilar leikmanni.

  • Án-takmarks Omaha

    Lágmarksboð í leiknum Án-takmarks Omaha er jöfn upphæð stóra-blinds, en að öðru leiti er leikmönnum heimilt að bjóða án annarra takmarkana, eins lágt eða hátt (þar með talið alla sína spilapeninga) og þeir vilja sjálfir.

    Lágmarkshækkun: Í Án-takmarks Omaha þarf hækkað boð að vera að minnsta kosti jafnt fyrra boði í sömu umferð. Til dæmis ef leikmaður hefur boðið $5 þá þarf næsti leikmaður að leggja að minnsta kosti $10 út til hækkunar (jafna $5 úr boðinu og hækka um sína $5).

    Hámarkshækkun: Takmarkast einungis af staflanum þínum (allir þeir spilapeningar sem þú átt á borðinu).

    Í Án-takmarks Omaha er ekkert þak á leyfðum fjölda hækkana í hverri umferð.

Í spilahugbúnaði PokerStars er ekki mögulegt að bjóða lægri upphæðir en lágmarksboð, né hærri en hámarksboð hverju sinni. Boðvogin (bet-slider) og boðhnappurinn gera þér einungis kleift að haga þínum boðum innan þeirra marka sem eru í gildi þá stundina og takmarkast sjálfkrafa af því hverju sinni.

Omaha Hi/Lo (þekkt líka sem Omaha 8 og Omaha/8) og aðrir pókerleikir

Til viðbótar við Omaha býður PokerStars einnig upp á hið geysivinsæla afbrigði Omaha Hi/Lo . Þetta afbrigði af Omaha deilir pottinum á milli þess sem hefur hæstu pókerhöndina og þess sem hefur lægstu pókerhöndina og gefur þannig leiknum allt annað yfirbragð. Ef þig langar til að spila á pókermótum þá býður PokerStars einnig upp á fjölmörg mót í Omaha.

Ef þig langar til að prófa að spila Omaha, en ert ekki viss um að vera kominn með reglurnar á hreint, þá reyndu þig endilega á einu af mörgum ókeypis pókerborðunum okkar þar sem þú hefur engu að tapa nema leikpeningum. Ef þú ert ekki nú þegar skráður spilari á PokerStars og þig langar til að spila Omaha á netinu, þá skaltu byrja á að fara á síðuna ókeypis pókerniðurhal og þú getur verið sestur að æfingum við spilaborðin að vörmu spori. Við bjóðum einnig upp á leiki einsog Texas Hold’em , Seven Card Stud ,Seven Card Stud Hi/Lo , ásamt fjölda annarra spilaafbrigða í pókersalnum okkar.

Athugið að sumir tenglarnir á þessu svæði opna ensku útgáfuna af PokerStars
í nýjum glugga.

Um okkur | Skilmálar og skilyrði | Öryggi | Meðferð persónuupplýsinga | Svæðisyfirlit
Höfundarréttur © 2001- , PokerStars. Allur réttur áskilinn. Rational Entertainment Enterprises Limited, 33-37 Athol Street,
Douglas, IM1 1LB, Isle of Man. Leyfi endurnýjað 1. ágúst, 2010. Netveðmál eru háð reglum á eynni Mön.