Razz (Seven Card Stud Low)
Razz (Seven Card Stud, sem eingöngu er spilaður í low) er pókerleikur þar sem besta Ás-til-fimma low pókerhöndin vinnur pottinn þegar á hólminn (e. showdown) er komið. Í Razz fá spilarar gefin samtals sjö spil á meðan höndinni stendur, en einungis fimm bestu spilin í lágspilahönd spilarans eru notið til að úrskurða um sigurvegarann. Athugið að ólíkt því sem er í Seven Card Stud Hi/Lo eða í Omaha Hi/Lo, þá þarf ekkert „átta-eða-betra“ í Razz til þess að geta unnið pottinn.
Í Razz er stuðst við „Ás til fimm“ eða „California“ kerfið til að raða svo lágum höndum eftir. Raðir eða litur vinna ekki gegn höndinni og Ásar eru alltaf lægstir, svo besta höndin er því „hjólið“: 5, 4, 3, 2, A. Til að auðveldara sé að skilja handaröðunina þá er eftirfarandi sýnishornum um Razz hendur raðað frá þeirri veikustu (#1, sem sjaldan vinnur pottinn) til þeirrar sterkustu (#12, rærnar, e. the nuts):
3, 3, 3, 5, 5- K, K, 4, 3, 2
- 2, 2, 7, 6, 5
- A, A, T, 9, 8
- K, Q, J, T, 9
- K, Q, J, T, 7
- 9, 8, 7, 6, 5
- 9, 7, 6, 5, 3
- 9, 7, 6, 5, A
- 6, 5, 4, 3, 2
- 6, 4, 3, 2, A
- 5, 4, 3, 2, A
Athugið að ópöruð lágspilahönd raðast frá hæsta spilinu og niður. Þá er t.d. hönd #10 þekkt sem „Sexa-low“ vegna þess að hæsta spilið í höndinni er Sexa. Hönd #9 er „Nía-low“, og hönd #5 er „Kóngur-low“. Í pókermáli þá er svo gerður munur á svipað sterkum höndum með því að fikra sig lengra í höndinni. Þannig er hönd #11 kölluð „Sexa-fjarki low“, sem þá vinnur hönd #10, sem er “Sexa-fimma low”.
Reglur við spilun Razz
Forskotin (e. Ante)
Áður en Razz leikurinn byrjar þá þurfa allir spilarar skjóta fyrst í pottinn smávægilegri upphæð (sú upphæð fer svo eftir leiknum sem er spilaður og stendur þá við nafnið á borðinu sem spilað er á). Þetta er það sem kostar að fá gefin spil í höndinni. Til dæmis, á myndinni hér fyrir ofan, þá er forskotið 0,10$ í 1$/2$ leik.
Þriðja-stræti (e. Third Street)
Hverjum spilara eru gefin þrjú spil, tvö holuspil sem eru á grúfu og svo eitt sem snýr upp. Í Razz þá er sá sem fær hæsta spilið sem snýr upp í loft kallaður smali (e. bring-in) og þarf að byrja. Þá þarf hann að leggja út smáboð (e .nominal bet) (og fer upphæð smalans bara eftir leiknum sem er í gangi) eða einnig má hann, ef hann vill, leggja út fullt lágmarksboð. Sögnin heldur svo áfram réttsælis pókerborðið allt þar til boðum er lokið í þeirri lotu.
Fjórða stræti (e. Fourth Street)
Hver spilari fær nú annað spil gefið upp í loft, sem kallast Fjórða-stræti. Sá sem fyrstur á að gera núna er sá sem er með sterkustu (lægstu) höndina sjáanlega. Reglan segir að sá spilari má skoða (e. check) eða bjóða (e. bet). Upphæðin sem hann mundi bjóða er lægsta boð (1$ í 1$/2$ leik). Nú fer þá fram boðlota (e. betting round).
Fimmta-Stræti (e. Fifth Street)
Hver spilari fær nú annað spil gefið upp í loft, svokallað Fimmta-stræti. Aftur, þá þarf sá að segja fyrstur sem er með lægstu spilin sjáanleg (sterkustu lághöndina). Til dæmis, eins og er á myndinni hér uppi, þá ætti spilarinn með Áttu hæst að segja fyrstur, þar sem það sem við sjáum af höndinni hans þýðir að hún er lægri en hjá þeim sem er með Sjöu-par og þeim sem er með Drottningu hæst, af því sem við sjáum. Spilarinn með Áttu hæst getur þá valið að skoða ( e. check) eða að bjóða hæsta boð, sem er það sem hann hefur gert í þessu dæmi sem sýnt er.
Þá fer fram boðlota.
Frá og með Fimmta-stræti og það sem eftir er af höndinni þá eru öll boð og hækkanir miðaðar við hæsta boð (2$ í leiknum sem er sýndur í dæminu og er 1$/2$).
Sjötta-stræti (e. Sixth Street)
Hver spilari fær nú gefið annað spil upp í loft sem kallast Sjötta-stræti. Aftur, þá á sá að segja fyrstur sem er með bestu sjáanlegu höndina (þá lægstu). Þá er svo boðlota.
Sjöunda-stræti, eða Fljótið (e. Seventh Street, or The River)
Hver spilari fær nú gefið sjöunda og síðasta spilið og það er gefið á grúfu og enginn sér á það nema sá sem fær það gefið. Líkt og á fyrri strætum spilsins, þá skal sá segja fyrstur sem hefur lægstu pókerhöndina. Síðasta boðlotan hefst þá og ef fleiri en einn spilari eru með í höndinni þegar henni er lokið þá er komið að hólminum (e. showdown).
Hólmurinn- skorið úr um sigurvegarann
Ef fleiri en einn spilari eru enn með í höndinni þegar síðustu boðlotunni er lokið, þá skal sá sem síðastur bauð eða hækkaði sýna sín spil fyrst (því hann hefur þá verið kallaður eða boð hans séð að jöfnu). Ef ekkert hefur verið boðið í síðustu boðlotunni, þá skal sá sýna fyrstur sem situr fremstur (sæti 1, sæti 2, sæti 3 o.s.frv.). Aðrar hendur sem eru með þegar í Hólminn er komið eru þá sýndar réttsælis um borðið.
Spilarinn með bestu fimm spila Ás-Fimm lághöndina vinnur pottinn. Munið að (ólíkt því sem gildir í Seven Card Stud Hi/Lo and Omaha Hi/Lo) að það eru engin frumskilyrði; besta lágspilahöndin vinnur einfaldlega allan pottinn. Eftir að potturinn hefur verið veittur þeim sem var með bestu lágspila höndina, þá getur nýr leikur af Razz hafist.
Ef tvær eða fleiri hendur hafa sama gildi þá er pottinum skipt jafnt á milli þeirra. Spilasortir raðast hér ekki í neina styrkleikaröð og geta því ekki skorið úr um hver fær pottinn.
Boðmöguleikar spilarans
Í Razz, líkt og í öðrum pókerleikjum, þá eru mögulegar sagnir að pakka (e. fold), skoða (e. check), bjóða (e. bet), kalla/sjá að jöfnu (e. call), eða að hækka (e. raise). Hvaða sagnir eru svo í boði hverju sinni fyrir spilarann fer algjörlega eftir því sem hefur gerst áður en kemur að honum að segja og hvað hinir spilararnir hafa gert. Sérhver spilari getur alltaf pakkað, þ.e. að leggja frá sér spilin og gefa frá sér möguleikann á að vinna pottinn. Ef enginn hefur enn lagt út nokkuð boð, þá má spilari velja að skoða (að hafna því að bjóða, en halda spilunum enn um sinn og sjá hvað gerist), eða að bjóða. Ef spilari hefur boðið, þá geta aðrir spilarar sem gera þar á eftir pakkað, séð, eða hækkað. Það að kalla, eða að sjá að jöfnu, þýðir að spilari jafnar það boð sem þegar hefur verið lagt út. Að hækka þýðir að þú ert ekki bara að jafna það boð sem þegar er komið út, heldur hækkar þú það enn frekar. Boð og hækkanir sem gilda í leikjum sem spilaðir eru með takmörkum fara öll eftir fyrirfram ákveðnum upphæðum.
Frekari Razz reglur og uppákomur
- Til að skera úr um smala (e. bring-in) í Razz, ef að spil eru jafnhá sem gefin eru upp í loft, þá er notast við spilasortirnar til að skera út um hver byrjar og raðast sortirnar þá frá sterkustu sortinni til þeirrar veikustu, nefnilega frá spaða, í hjarta, í tígul, í lauf (stafrófsröð enskra heita sortanna). Hæsta sortinn er því smali, þannig að ef hjarta-Drottning og tígul-Drottning eru í borði og að Drottning sé hæsta sjáanlega spilið, þá væri hjarta-Drottning smalinn í þessu tilviki. (Athugið þó vel að þessi regla gildir ekki til að skera úr um jafnar hendur í hólminum (e. showdown)).
- Ef spilarinn með hæsta spilið sem sést á Þriðja-stræti er með allt-í (e. all-in) við forskotin (e. ante) og getur því ekki lagt út smalaboðið, þá færist smalinn réttsælis á næsta spilara við borðið, óháð því hvaða spil hann er svo með sýnilegt.
- Vegna þess að Stud leikir eru spilaðir með átta spilurum og aðeins 52 spilum, þá getur það gerst að spilin í stokknum klárist áður en komið er að því að gefa spil í Sjöunda-stræti. Við þessi undantekningartilvik þá skal gefa eitt sameignarspil (e. community card) upp í loft í borðið, sem svo allir spilararnir, sem enn eru með í höndinni, nota saman sem sitt eigið.
Önnur tilbrigði við Stud leikinn
Seven Card Stud er einnig hægt að nálgast í pókersal PokerStars í „high only“ útgáfu.
PokerStars býður svo líka upp á Seven Card Stud Hi/Lo. Í þessaru útgáfu af Stud þá skiptist potturinn á milli þeirra sem eru með bestu háu pókerhöndina og þeirra sem eru með bestu forskilyrtu „eight or better“ low höndina.
Lærðu ókeypis hvernig þú átt að spila Razz
Ef þú þekkir þig til í Stud póker þá ætti að taka stutta stund að ná tökum á Razz. Ef þú þekkir hinsvegar lítið sem ekkert til í hvernig Stud er spilaður, þá mælum við með að þú prófir að spila þannig póker við ókeypis spilaborðin okkar fyrst, svona til þess að læra og ná valdi á leiknum. Þér er alltaf velkomið að reyna þig við ókeypis spilaborðin á PokerStars, allt svo að þú getir brýnt á pókerhæfileikunum áður en þú spilar póker fyrir alvöru peninga.
Gangi þér vel við að spila Razz!
Síður fyrir aðra pókerleiki
Við bjóðum einnig upp á eftirfarandi leiki:
- Texas Hold’em
- Omaha
- Omaha Hi/Lo (Eight or Better)
- Seven Card Stud
- Seven Card Stud Hi/Lo (Eight or Better)
- Triple Stud
- Five Card Draw
- 2-7 Single Draw Lowball (Kansas City Lowball)
- 2-7 Triple Draw Lowball
- Badugi
- HORSE / HOSE
- 8-Game Mix
Þú gætir einnig haft áhuga á að skoða síðu um pókersalinn okkar almennt. Þar finnur þú upplýsingar um eftirfarandi viðfangsefni:
- Pókersalurinn
- Pókerreglur
- Pókermót
- Pókeraðferðir-strategía
- Pókersalurinn FAQ (algengar spurningar)
- Sértækir valmöguleikar á PokerStars
Kærar þakkir fyrir að kynna þér leiðbeiningar um Razz á PokerStars. Ef þú hefur einhverjar frekari spurningar þá vinsamlegast sendu þær í tölvupósti á support@pokerstars.com.




