Seven Card Stud
Seven Card Stud er klassískur pókerleikur sem tekur menn allt lífið að ná fullum tökum á. Í Seven Card Stud fá spilarar gefin sjö spil á meðan höndinni stendur, en nota svo eingöngu fimm þeirra til að mynda sem sterkasta pókerhönd, sem notuð er til að skera úr um sigurvegarann. Kynnið ykkur síðuna okkar um styrkleikaröðun pókerhanda í Seven Card Stud.
Ólíkt því sem er í Texas Hold’em og Omaha, þá er Seven Card Stud vanalega spilaður með Takmörk í boðauppbyggingu (e. Limit betting-structure), en þá fara boð (e. bet) fram eftir fyrirfram ákvörðuðum einingum. Til dæmis, í leik sem er 2$/4$ Takmarks leikur, þá eru boð takmörkuð við 2$ einingarnar í fyrstu tveimur boðlotunum og við 4$ í næstu þremur boðlotum (e. betting round). Á PokerStars er ekki boðið upp á Pott-takmarks eða Án-takmarks Stud-leiki.
Reglur í Seven Card Stud
Forskotin ( e. Ante)
Áður en Seven Card Stud leikurinn byrjar þá þurfa allir spilarar skjóta fyrst í pottinn smávægilegri upphæð (sú upphæð fer svo eftir leiknum sem er spilaður og stendur þá við nafnið á borðinu sem spilað er á). Þetta er það sem kostar að fá gefin spil í höndinni. Til dæmis, á myndinni hér fyrir ofan, þá er forskotið 0,25$ í 2$/4$ leik
Þriðja-stræti (e. Third Street)
Hverjum spilara eru gefin þrjú spil, tvö holuspil sem eru á grúfu og svo eitt sem snýr upp. Spilarinn sem fær lægsta spilið sem snýr upp í loft er kallaður smali (e. bring-in) og þarf að byrja. Þá þarf hann að leggja út smáboð (e .nominal bet) (og fer upphæð smalans bara eftir leiknum sem er í gangi) eða einnig má hann, ef hann vill, leggja út fullt lágmarksboð. Sögnin heldur svo áfram réttsælis um borðið þar til boðum er lokið í þeirri lotu.
Fjórða-stræti (e. Fourth Street)
Hver spilari fær nú annað spil gefið upp í loft, sem kallast Fjórða-stræti. Sá sem fyrstur á að gera núna er sá sem er með sterkustu (hæstu) pókerhöndina sjáanlega. Til dæmis, eins og sést á myndinni hér að ofan, þá skal sá sem er með par af Ásum gera fyrst því það sem sést af höndinni hans er hærra en Kóngaparið og 4-2 höndin sem hinir spilararnir eru með. Reglan segir að sá spilari má þá skoða (e. check) eða bjóða (e. bet) samkvæmt lægra boðtakmarkinu (t.d. 2$ í leik sem er 2$/4$). Vinsamlegast skoðið svo „Frekari reglur og uppákomur“ hlutann fyrir undantekningar á þessari reglu.
Nú fer þá fram boðlota (e. betting round).
Fimmta-stræti (e. Fifth street)
Hver spilari fær nú gefið annað spil sem snýr upp, svokallað Fimmta-stræti. Aftur, þá skal sá gera fyrstur sem hefur hæstu pókerhöndina sjáanlega á borðinu. Þá fer svo fram ný boðlota.
Frá og með Fimmta-stræti og það sem eftir er af höndinni þá miðast öll boð við hærri takmörk sem sett eru á boð (4$ í leik sem er 2$/4$).
Sjötta-stræti (e. Sixth Street)
Hver spilari fær nú gefið annað spil sem snýr upp, kallað Sjötta-stræti og aftur byrjar sá sem er með hæstu sjáanlegu pókerhöndina. Ný boðlota fer svo hringinn.
Sjöunda-stræti, eða Fljótið (e. Seventh Street, or The River)
Hver spilari fær nú gefið sjöunda og síðasta spilið og það er gefið á grúfu og enginn sér á það nema sá sem fær það gefið. Líkt og á fyrri strætum spilsins, þá skal sá segja fyrstur sem hefur hæstu pókerhöndina. Síðasta boðlotan hefst þá og ef fleiri en einn spilari eru enn með í höndinni þegar henni er lokið þá er komið að Hólminum (e. showdown).
Hólmurinn (e. The Showdown)
Ef fleiri en einn spilari eru enn með í höndinni þegar síðustu boðlotunni er lokið, þá skal sá sem síðastur bauð eða hækkaði sýna sín spil fyrst (því hann hefur þá verið kallaður eða boð hans séð að jöfnu). Ef ekkert hefur verið boðið í síðustu boðlotunni, þá skal sá sýna fyrstur sem situr fremstur (sæti 1, sæti 2, sæti 3 o.s.frv.). Aðrar hendur sem eru með þegar í Hólminn er komið eru þá sýndar réttsælis um borðið.
Spilarinn sem hefur bestu fimm-spila pókerhöndina vinnur pottinn. Ef það gerist að tveir eða fleiri eru með jafn sterka hönd þá skal skipta pottinum jafnt á milli sigurhandanna.
Eftir að potturinn hefur verið veittur þá getur nýr netleikur af Seven Card Stud hafist.
Boðmöguleikar spilarans
Í Stud, líkt og í öðrum pókerleikjum, þá eru mögulegar sagnir að pakka (e. fold), skoða (e. check), bjóða (e. bet), kalla/sjá að jöfnu (e. call), eða að hækka (e. raise). Hvaða sagnir eru svo í boði hverju sinni fyrir spilarann fer algjörlega eftir því sem hefur gerst áður en kemur að honum að segja og hvað hinir spilararnir hafa gert. Sérhver spilari getur alltaf pakkað, þ.e. að leggja frá sér spilin og gefa frá sér möguleikann á að vinna pottinn. Ef enginn hefur enn lagt út nokkuð boð, þá má spilari velja að skoða (að hafna því að bjóða, en halda spilunum enn um sinn og sjá hvað gerist), eða að bjóða. Ef spilari hefur boðið, þá geta aðrir spilarar sem gera þar á eftir pakkað, séð, eða hækkað. Það að kalla, eða að sjá að jöfnu, þýðir að spilari jafnar það boð sem þegar hefur verið lagt út. Að hækka þýðir að þú ert ekki bara að jafna það boð sem þegar er komið út, heldur hækkar þú það enn frekar. Boð og hækkanir sem gilda í leikjum sem spilaðir eru með takmörkum fara öll eftir fyrirfram ákveðnum upphæðum.
Frekari Stud reglur og uppákomur
- Til að skera úr um hver skuli vera smalinn í Seven Card Stud, ef jafnhátt spil kemur í borð hjá spilurunum, er notast við spilasortina til að ákvarða hver skal vera smali. Sortirnar raðast þá í styrkleikaröð eftir stafrófinu (á ensku) – clubs (lauf, sem er þá lægst), diamonds (tíglar), Hearts (hjörtu) og Spades (spaðar, sem þá eru hæstir). Veikasta sortin gefur undan, sem þýðir þá að ef hjarta-Tvistur og laufa-Tvistur eru spilin sem voru gefin lægst þá tapar laufa-Tvistur og tekur því að sér að smala. (Athugið samt að ekki er notast við þessa reglu til að skera úr um jafn háar hendur þegar komið er að Hólminum til að úrskurða um hver vinnur pott).
- Ef spilarinn með hæsta spilið sem sést á Þriðja-stræti er með allt-í (e. all-in) við forskotin (e. ante) og getur því ekki lagt út smalaboðið, þá færist smalinn réttsælis á næsta spilara við borðið, óháð því hvaða spil hann er svo með sýnilegt.
- Þegar komið er á Fjórða-stræti og par er sjáanlegt í borði hjá einhverjum spilaranna, þá má opna boðin með hækkun, þá stóru boði (e. big-bet, t.d. 4$ í 2$/4$ leik). Ef einhver opnar boðin í þessari boðlotu með stóru boði þá þarf að halda áfram að notast við stóra boðið út Fjórða-stræti.
- Vegna þess að Stud leikir eru spilaðir með átta spilurum og aðeins 52 spilum, þá getur það gerst að spilin í stokknum klárist áður en komið er að því að gefa spil í Sjöunda-stræti. Við þessi undantekningartilvik þá skal gefa eitt sameignarspil (e. community card) upp í loft í borðið, sem svo allir spilararnir, sem enn eru með í höndinni, nota saman sem sitt eigið.
Önnur tilbrigði við Stud leikinn
Önnur útgáfa af Seven Card Stud, svokallaður Seven Card Stud Hi/Lo (e.þ.s. „Stud Eight or Better“ og „Stud/8“) er einnig hægt að spila í pókersalnum á PokerStars. Í þessari útgáfu af Stud þá eru mögulega tveir sigurvegarar í hverri hönd, annar aðilinn þá sá sem er með bestu háu höndina og hinn aðilinn sem sá sem er með bestu lágu höndina, að því gefnu að hún falli undir skilyrðinguna „eight low or better“.
PokerStars býður einnig upp á að spila Razz. Þetta tilbrigði við Stud leikinn spilast þannig að sá fær allan pottinn sem er með bestu lágspilahöndina og er engin skilyrðing á henni.
Lærðu ókeypis hvernig þú átt að spila Stud
Ef þú hefur aldrei spilað Seven Card Stud áður, þá ertu velkominn í að reyna þig á einhverju af ókeypis póker borðunum okkar. Ef þú ert ekki nú þegar með reikning á PokerStars, þá getur þú hlaðið niður ókeypis pókerhugbúnaðinum okkar og stofnað þar leikpeningareikning til þess að æfa þig á. Við bjóðum auðvitað einnig upp á Seven Card Stud pókermót.
Gangi þér vel við að spila Seven Card Stud!
Síður fyrir aðra pókerleiki
Við bjóðum einnig upp á eftirfarandi pókerleiki:
- Texas Hold’em
- Omaha
- Omaha Hi/Lo (Eight or Better)
- Seven Card Stud Hi/Lo (Eight or Better)
- Triple Stud
- Razz
- Five Card Draw
- 2-7 Single Draw Lowball (Kansas City Lowball)
- 2-7 Triple Draw Lowball
- Badugi
- HORSE / HOSE
- 8-Game Mix
Þú gætir einnig haft áhuga á að skoða síðu um pókersalinn okkar almennt. Þar finnur þú upplýsingar um eftirfarandi viðfangsefni:
- Pókersalur
- Pókerreglur
- Pókermót
- Pókeraðferðir- Strategía
- Pókersalur FAQ (algengar spurningar)
- Sértækir valmöguleikar á PokerStars
Kærar þakkir fyrir að kynna þér leiðbeiningar um Seven Card Stud á PokerStars. Ef þú hefur einhverjar frekari spurningar þá vinsamlegast sendu þær í tölvupósti á support@pokerstars.com.




