Play Poker - Download Now

Einstakir pókerviðburðir á netinu í tilefni af afmæli PokerStars

Fagnaðu árunum 10 með PokerStars og þú gætir unnið milljónir

Fagnaðu árunum 10 með PokerStars og þú gætir unnið milljónir

PokerStars er 10 ára og þú getur haldið upp á það með glæsibrag í einni stærstu mótaröð sem farið hefur fram hjá okkur á netinu, en þar verða risaverðlaun og jafnvel enn betra virði fyrir peningana en áður hefur sést. Miljónum dala verður bætt við peningaverðlaun sem spilað er um, pakkar inn á lifandi viðburði PCA verða í boði og margt fleira og þú getur tryggt þér hluta af þessu öllu nú þegar.

Hér er smá forsmekkur að því hverju þú hefur að hlakka til á meðan við höldum upp á 10 ára afmælið. Afmælisviðburðirnir verða kynntir smám saman, svo þú skalt kíkja hérna inn daglega til að missa ekki af neinu.

Hátíðarútsending PokerStars Radio Special á 10 ára afmælinuEkki missa af PokerStars Radio - 10th Anniversary Special þættinum sem verður klukkan 17:00 GMT, þann 4. desember og þar verða allar nýustu fréttir og frábær verðlaun í boði, eins og miðar í sérstaka afmælisútgáfur af Sunday Million og Sunday Storm mótin. Kíktu á síðuna fyrir PokerStars Radio til að kynna þér þetta betur.

Smelltu á hlekkinn til að lesa PokerStars 10th Anniversary e-magazine, sem er troðfullt af skemmtilegum fróðleik og myndbrotum frá síðastliðnum tíu árum.

10 ótrúlega fjörug ár: Saga PokerStars í stuttu máli

PokerStars stóð fyrir fyrstu leikjunum í desember 2001 og trónir nú á toppnum sem vinsælasta svæði netpókers í heiminum þar sem milljónir skráðra spilara, alls staðar að, koma saman. World Championship of Online Poker (WCOOP) fór fram í fyrsta sinn árið 2002 og innihélt aðeins níu viðburði og heildarverðlaunapotturinn var $800.000. Nú er þetta fremsta mótaröðin sem haldin er árlega og náði hún hámarki hingað til árið 2010, þegar verðlaunapotturinn sem var tryggður fór í $50.000.000.

Hamagangurinn við borðin fór fyrst á fulla ferð árið 2003, þegar áhugaspilari að nafni Chris Moneymaker tryggði sér sæti í World Series Main Event í gegnum inngöngumót (e. satellite) á PokerStars. Hann fór svo alla leið á toppinn og vann meistaratitilinn og þjófstartaði þannig flóðbylgju netpókersins sem fór um allan heiminn. Innan örfárra ára var PokerStars farið að senda hundruð spilara, sem höfðu unnið sér inn sæti, til Las Vegas og vonuðust þeir allir til þess að feta í fótspor Moneymaker og tryggja sér verðlaunin sem myndu breyta lífi þeirra.

Auk þess að hafa kynnt til sögunnar gríðar vinsæla netviðburði, eins og Sunday Million (2006) og Spring Championship of Online Poker (2009), þá færði PokerStars einnig borðapókerinn til fólksins, með mótaröðum á borð við European Poker Tour (EPT), Asia Pacific Poker Tour (APPT) og UK & Ireland Poker Tour (UKIPT), sem löðuðu að sér stóran hóp spilara og enn stærri verðlaunapotta.  

Á svæðinu hafa svo margir bestu pókerspilarar samtímans komið í dagsljósið, eins og t.d. Bertrand ‘ElkY’ Grospellier (fyrsti spilarinn sem náði í stöðu VIP Club Supernova Elite, árið 2007, PCA 2008 meistari, tvöfaldur WCOOP sigurvegari 2009, sigurvegari SCOOP 2011) og Anders ‘Donald’ Hoyer Berg (fyrstur til að tryggja sér sæti sem PokerStars World Series Main Event þátttakandi, þrefaldur WCOOP sigurvegari, SCOOP meistari) og svo margir fleiri, sem sýnir að PokerStars er í raun heimavöllur sannarlega hæfileikaríkra pókerspilara. Team PokerStars Pro skipar líka stóran sess í mótaröðum í borðapóker, þar sem hetjur á borð við Daniel Negreanu og stórspilarar eins og Jason Mercier eru áberandi.

PokerStars hefur einnig sett heimsmet fyrir mestan fjölda spilara á netinu í einu (300.000+ árið 2009), fjölmennasta mót nokkru sinni (200.000 árið 2011) og mestan fjölda gefinna handa (yfir 71 milljarður í desember 2011 og fjölgar enn). Svæðið hefur einnig unnið til ótal verðlauna fyrir spilahugbúnað sinn sem og fyrir þjónustuliðið og einnig hafa milljónir dala verið gefnir til góðgerðamála, en það er þinni gjafmildi einnig að þakka. Og það er ekki allt búið enn. Við stefnum á að næstu 10 ár verði enn betri.


Hafðu samband við support@pokerstars.com ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi 10 ára afmælishátíðina.

Um okkur | Skilmálar og skilyrði | Öryggi | Meðferð persónuupplýsinga | Svæðisyfirlit
Höfundarréttur © 2001- , PokerStars. Allur réttur áskilinn. Rational Entertainment Enterprises Limited, 33-37 Athol Street,
Douglas, IM1 1LB, Isle of Man. Leyfi endurnýjað 1. ágúst, 2010. Netveðmál eru háð reglum á eynni Mön eynni Mön.