Byrjunarinnleggsbónus í póker – 100% innskráningarbónus fyrir PokerStars
Eins og við er að búast af heimsins stærsta pókervefsvæði býður PokerStars veglegustu innleggsbónusana sem fáanlegir eru á netinu. Innleggsbónuskerfið er ein besta ástæðan fyrir því að spila á PokerStars þar sem það gerir þér kleift að auka peningainneignina – með því einu að spila á vefsvæðinu. Þeir sem leggja inn í fyrsta sinn fá 100% bónusa við fyrstu þrjú innleggin, allt að $600, og fá $10 í hvert sinn sem þeir vinna sér inn 170 VPP-spilarapunkta. Þetta er ein af leiðum okkar til að gera reynslu þína af póker ánægjulega og veita þér viðurkenningu um leið.
- Hvernig fæ ég innleggsbónus?
- Þú átt rétt á 100% innleggsbónusnum þegar þú leggur inn fyrsta innleggið þitt í peningum hjá PokerStars á gildistímabilinu.
Ef þú tekur út einhverja upphæð af PokerStars-reikningnum á bónustímabilinu, áður en þú hefur lagt inn gilt innlegg, áttu ekki rétt á innleggsbónusnum.
Hafðu í huga að sum bónustilboð renna út og að þú verður að vinna þér inn þá grunnspilarapunkta sem krafist er áður en tilboðið rennur út til að fá bónusinn. Til að athuga hvort bónusinn rennur út skaltu smella á hnappinn Cashier (gjaldkeri) í spilahugbúnaði PokerStars og smella svo á hnappinn „Check My Bonus Status“ (athuga bónusstöðu). - Hvar sé ég bónusinn minn?
- Þegar þú hefur lagt inn geturðu skoðað bónusinn sem þú átt í vændum í gjaldkeraglugganum í PokerStars-hugbúnaðinum. Einnig er þar að finna upplýsingar um fjölda þeirra grunnspilarapunkta (FPP-grunnpunkta, sama og VPP-punktar) sem þú verður að vinna þér inn til að fá bónusinn. Þú getur skoðað þessi atriði með því að smella á hnappinn „Cashier“ (gjaldkeri). Þegar þú hefur opnað gjaldkeragluggann smellirðu á hnappinn „Check My Bonus Status“ (athuga bónusstöðu). Þú getur fundið nánari upplýsingar um FPP-kerfið á síðunni PokerStars-spilarakerfið.
- Hvernig fæ ég bónusinn minn?
- Til að vinna þér inn innleggsbónusinn verðurðu að vinna þér inn tilgreindan fjölda FPP-grunnpunkta. Fjöldi FPP-grunnpunkta sem þú verður að vinna þér inn og hámarksbónusinn sem þú getur unnið þér inn getur verið breytilegur eftir tilboðum.
Dæmi – Þú leggur inn $300 fyrir 100% byrjunarinnleggsbónusinn. Þú átt nú í vændum $300 bónus með kröfu um 17x FPP-grunnpunkta. Þú færð $10 í hvert sinn sem þú vinnur þér inn 170 FPP-grunnpunkta. Ef þú legðir svo inn $400 fengirðu aðra $300 í bónus (þar sem hámarksbónusinn er $600) með sömu punktakröfu.
FPP-punktar sem þú vinnur í inngöngumóti gilda ekki til að fá bónus. Ef þú tekur til dæmis þátt í 100 FPP-punkta inngöngumóti, vinnur sæti í 1000 FPP-punkta inngöngumóti og skráir þig svo úr því færðu 1000 FPP-punkta. Þessir punktar gilda ekki til að fá innleggsbónus.
Leikpeninga- og fríaðgangsmót veita ekki FPP-punkta. Það kostar ekki neitt að spila á þessum mótum og sem slík eru þau ekki hluti af FPP-kerfi PokerStars.
Eftir að nauðsynlegum fjölda FPP-grunnpunkta eftir innlegg hefur verið náð færist bónusinn úr því að vera „í vændum“ yfir í innistæðu hjá PokerStars. PokerStars sendir þér tölvupóst til að staðfesta að bónusupphæðin hafi verið færð yfir á reikninginn þinn. Færslunnar verður einnig getið undir „History“ (saga) í gjaldkeraglugganum. - Hvað ef PokerStars er núna með annað innleggsbónustilboð í gangi? Get ég nýtt mér bæði tilboðin?
- Ef þú hefur aldrei áður lagt inn geturðu vissulega nýtt þér bæði tilboðin! Til að gera þetta verðurðu fyrst að leggja inn með 100% byrjunarinnleggsbónuskóðanum – „STARS600“. Síðan þegar þú leggur meira inn geturðu notað annan virkan bónuskóða til að leggja inn annað gilt innlegg. Gættu þess vel að þú skiljir skilmála hins bónussins, þ.m.t. að leggja inn síðara innleggið á gildistímabilinu og nota réttan bónuskóða.
Mundu að þegar þú leggur inn í fyrsta sinn áttu þess kost að leggja inn tvö gild innlegg í viðbót á fyrstu 60 dögunum.
Dæmi – Þú leggur inn $200 í fyrsta sinn, sem veitir þér rétt á $200 bónus. Viku síðar leggurðu inn $200 í viðbót, sem þýðir að hámarksbónusinn sem þú átt í vændum nemur $400. Síðan leggurðu inn $100 mánuði síðar, sem þýðir að heildarbónusinn sem þú átt í vændum nemur alls $500. (3 innlegg að hámarki $600 innan 60 daga frá fyrsta gilda innlegginu)
Þegar þú hefur fengið byrjunarinnleggsbónusinn að fullu greiddan með því að vinna til tilskilinna FPP-grunnpunkta verða allir frekari FPP-grunnpunktar sem þú vinnur til sjálfkrafa notaðir upp í seinni bónusinn.
Athugaðu: Eingöngu verða notaðir FPP-grunnpunktar upp í bónusinn sem þú átt í vændum. FPP-grunnpunktar eru FPP-punktar sem fást í gegnum peningaspil og mót á sama hátt og venjulegir FPP-punktar en þeim fylgja ekki bónuspunktarnir sem fást á hröðum VIP-tímabilum. FPP-bónuspunktar sem þú vinnur þér inn gegnum VIP-klúbbinn gilda ekki til að fá bónusinn. Á síðunni PokerStars-spilarakerfið færðu upplýsingar um hvernig þú vinnur þér inn FPP-grunnpunkta.
Gangi þér vel og takk fyrir að spila á PokerStars!
Hafðu samband við support@pokerstars.com ef þú vilt spyrja einhvers um innleggsbónusa PokerStars.




