Spilað upp á raunverulega peninga
Ertu tilbúin/n að spila póker upp á raunverulega peninga á PokerStars? Þá skaltu hlaða niður netpókerhugbúnaðinum okkar og byrja að spila! Þessi síða segir þér það sem þú þarft að vita um peningainnlegg og úttektir. Ef þú hefur einhverjar aðrar spurningar um póker upp á raunverulega peninga sem ekki er svarað hér skaltu hafa samband við support@pokerstars.com.
Innlegg og útborganir raunverulegra peninga
Tekið er við innleggi í raunverulegum peningum á pókerreikning þinn með ýmsum hætti. Lágmarksinnlegg sem á við alla valkosti er $10 (nema annað sé tekið fram). Veldu land þitt af fellilistanum hér að neðan til að skoða lista yfir greiðslu- og útborgunaraðferðir sem bjóðast.
| Methods | Payment | Cashout | |
|---|---|---|---|
PokerStars er netpókersalur, ekki spilavíti. Það merkir að þú spilar aldrei við húsið, eingöngu aðra pókerspilara á internetinu. Við fáum þóknun með því að taka örlítinn hlut, eða tekju, af hverjum potti – kallað „rake“ á ensku. Þessi hluti af pottinum fer aldrei yfir $5. Við lægri peningamörk tekur PokerStars einnig lægri hlut. Nákvæmar upplýsingar um tekjugjaldið sem við tökum, „rake“, er hægt að sjá á gjaldssíðunni.
Pókerpeningum spilara á PokerStars og innistæðum á reikningum er haldið á sérstökum reikningum og er ekki varið í neins konar rekstrarkostnað PokerStars. Þessir sérstöku reikningar eru í umsjón evrópsks banka í fremstu röð. Þessar ráðstafanir tryggja að PokerStars getur alltaf staðið við fjárhagslegar skuldbindingar sínar gagnvart netpókerspilurum sínum og getur ennfremur tryggt að sjóðir spilaranna eru alltaf öruggir hjá PokerStars.
Innleggsaðstoðardeild
Ef þú lendir í vanda við að leggja raunverulega peninga inn á gjaldkerann getur innleggsaðstoðardeild PokerStars, DAD (Deposit Assistance Departement), aðstoðað þig. Ef innleggi sem þú ert að reyna að koma inn er hafnað birtist sprettigluggi. Færðu þá inn símanúmer þitt og þann tíma sem hentugast er að við hringjum í þig. Við hringjum svo í þig til að hjálpa þér að fá innlegg þitt samþykkt. Ef ekki birtist sprettigluggi sendu okkur þá tölvupóst á dad@pokerstars.com, með „Phone Request“ í efnislínunni og tímanum sem við getum hringt í þig.
Vinsamlegast hafðu í huga að DAD býðst aðeins á ensku og spænsku.
Innleggsmörk sett
PokerStars telur að spilarar eigi sjálfir að fá að stjórna því hvaða fjárhæðum þeir verja til þess að spila netpóker. Við leyfum þér að takmarka vikulegt innlegg þitt í raunverulegum peningum. Auðvitað mega þessi mörk ekki vera hærri en þau sem þegar eru á reikningnum þínum. Þú ferð bara í anddyrið í gjaldkera og smellir á „Takmarka innlegg“.
Texas Holdem upp á raunverulega peninga o.fl.
Hægt er að spila með raunverulegum peningum í eftirfarandi pókerspilum og pókermótum á PokerStars:
- Texas Holdem
- Omaha High Low
- Omaha High
- Seven Card Stud High Low
- Seven Card Stud
- Razz
- HORSE/HOSE
- Tournaments
- Inngöngumót fyrir:
Útborgun pókervinninga
Til að fá útborgað smellir þú á hnappinn „Gjaldkeri“ í anddyrinu og velur síðan hnappinn „Útborgun“. Þegar beðið er um útborgunarupphæðina færir þú hana inn og smellir á „Senda“.
Lestu Útborgunarreglur okkar til að sjá tiltæka kosti og upplýsingar um úrvinnslu útborgana.
Ef þú ert með einhverjar spurningar varðandi það að spila Internetpóker upp á raunverulega peninga á PokerStars og fannst ekki svör við þeim á vefsvæði okkar, skaltu hafa samband við þjónustudeild okkar á support@pokerstars.com. Starfsfólk deildarinnar svarar þá öllum spurningum þínum sem upp koma. Þó að þú viljir ekki leggja inn raunverulega peninga núna getur þú samt hlaðið niður pókerhugbúnaði okkar og æft þig í Texas Hold'em á einhverju af leikpeningaborðum okkar. Gangi þér vel!
Athugið að sumir tenglarnir á þessu svæði opna ensku útgáfuna af PokerStars
í nýjum glugga.




