Pókersalur
Hversvegna ættir þú að veltast til fjarlægra spilavíta um allan heim þegar þú getur spilað í stærsta spilasal í heimi, heima í stofu – á PokerStars! Þú getur spilað alla eftirfarandi leiki í gegnum spilabiðlarann okkar sem hægt er að hlaða niður hér: Texas Holdem, Omaha Poker, Omaha High-Low, Seven Card Stud, Five Card Draw, 2-7 Triple Draw, 2-7 Single Draw, Seven Card Stud High-Low, Razz, Badugi, HORSE, 8-Game Mix and Poker Tournaments.
Smelltu á hlekkinn á leikjunum hér að ofan til að lesa nánar um hvern leik fyrir sig. Ef þú ert nýliði í netpóker þá mælum við með því að þú kynnir þér nánar síðuna grunnreglur í póker áður en þú sest að spilaborðinu. Einnig er gott að kynna sér síðuna um orðaskrá og tiltæki í póker hér á PokerStars.
PokerStars býður stolt upp á mikið úrval leikja og fjölborðamóta í öllum þeim pókerafbrigðum sem eru í boði á síðunni sem og Takamarks, Pott-takmarks og Án-takmarks útfærslur af þeim. Allt þetta er einnig að finna í ókeypis frípóker útfærslum fyrir spilarana okkar.
Á PokerStars, sama við hvaða borð þú sest, munt þú alltaf eingöngu eiga í höggi við aðra lifandi leikmenn, enga gervileikmenn. Meðspilarara þínir geta verið hvaðanæva að, hvort sem það er nágranni þinn neðar í götunni eða maður sem er við tölvuna sína hinumegin á hnettinum; Hjá PokerStars eru allir hluti af sama samfélaginu!
Til að kynna þér þær reglur sem gilda í Pókersalnum okkar þá viljum við að þú lesir reglusíðuna okkar.
Peningaspil með alvöru peningum og takmarkanir
PokerStars bjóða stoltir uppá mikið úrval peningaleikja, allt frá ör-innskotum þar sem bitar (e. „stakes“) eru $0.01/$0.02 til hákarlaleikja þar sem bitarnir eru öllu stærri, eða $1000/$2000. Alla leiki er svo að finna í fjölmörgum útfærslum og afbrigðum eins og Takmarks, Pott-takmarks og Án-takmarks útfærslum. Ef þú hefur frekar áhuga á að spila fyrir leikpeninga þá getum við bent þér að skoða frípóker síðuna okkar.
Lágmarks/Hámarks Borðinnskot (e. „Table Buy-In“)
Lágmarksinnskot í spilasalnum hjá okkur, á borð sem eru spiluð með Takmörk, er jöfn tíföldu lágmarksboði (sem er það boð sem gildir í fyrstu tveim boðlotunum (e. „betting rounds“) á borðinu). Til dæmis á borði með bitana $10/$20 mundi lágmarksinnskotið vera $100. Ekkert hámark er á innskot á borð sem spiluð eru með Takmarki.
Í leikjum sem spilaðir eru með Pott-takamark, Án-takmarks og Blandað, gilda mismunandi reglur um hámarks- og lágmarksinnskot. Upphæðir sem gilda um lágmarks- og hámarksinnskot eru gefnar til kynna á spjaldi sem kemur á skjáinn þegar greitt er inn fyrir þátttöku á viðkomandi borði. Í mörgum leikjanna má sjá hver þessi innskotsmörk eru á nafni spilaborðanna í anddyri, sem gefa það til kynna hver mörkin eru í hlutföllum við stóra-blindan (e. „big-blind“). Til dæmis í leik þar sem borð/bitar eru $1/$2 án-takmarks stendur einnig „40-100bb“ í anddyri. Þá er lágmarksinnskot þar $80 (40xstóri-blindur) og hámarsinnskot $200 (eða 100xstóri-blindur).
Allt-í (e. „All-In“)
Þegar leikmaður leggur síðustu spilapeningana sína í pottinn er hann sagður með allt-í. Leikmaður sem er með allt-í getur ekki unnið meiri pening en kemur í pottinn eftir að jafnað hefur verið við það sem hann setti í pottinn sjálfur. Ef allt-í upphæðin sem bjóðandi leggur undir er hærri en þær sem aðrir leikmenn sem enn eru með í leik geta jafnað skal umfram upphæðinni skilað til þess er bauð, en ef einhver leikmanna getur jafnað þá upphæð þá geta myndast síðupottar svokallaðir (sem eru þær upphæðir sem eru umfram það sem aðrir geta lagt að jöfnu í pottinn). Ef upphæðir standa enn umfram það sem aðrir hafa getað jafnað gengur afgangurinn af spilapeningunum aftur til upphaflega bjóðandans. Sá sem lagði allt-í er því enn gjaldgengur þátttakandi í að spila um aðalpottinn og er því ekki tilneyddur til að gefa frá sér spilahöndina fyrr á hólminn er komið.
Stundum getur leikmaður lent í því að eiga nóg af spilapeningum til að bjóða eða jafna í hönd sem er í leik, en hefur af einhverjum ástæðum misst samband við spilahugbúnaðinn eða nær ekki að svara í tæka tíð af einhverjum ástæðum. Ef þú missir samband við spilabiðlara PokerStars þá hefur þér verið úthlutaður örlítill aukatími til að bregðast við því sem þú getur nýtt á meðan þú reynir að tengjast við leikinn aftur. Ef þú ert í miðjum klíðum í stórum potti þá er einnig líklegt að sá tími sem þú færð til að endurtengjast sé lengdur enn frekar, svo þú getir gert. (Þessi aukatími og lengd hans er tilfallandi og er hann breytilegur milli leikja og stærðar þess potts sem er í leik hverju sinni). Ef þú nærð ekki að svara sögninni, eða tengjast innan þess tíma sem þér hefur verið úthlutað, mun hugbúnaðurinn velja/segja „að skoða“ (e. „check“) þegar það er hægt (og til að reyna gefa þér enn lengri tíma til að tengjast), annars er höndinni pakkað (ef leikstaðan býður ekki upp á að skoða).
“Hröð” Borð
Slík leikborð er hægt að þekkja á því að hratt/„fast“ stendur í sviga við nafn borðsins. Þessi sérborð eru hönnuð sérstaklega með þá leikmenn í huga sem vilja að leikurinn gangi hraðar fyrir sig en á hefðbundnum borðum. Mismunandi útfærslur er að finna á hröðum pókerborðum og eru þær eftirfarandi:
- Þú hefur einungis 15 sekúndur til að gera á borði með Takmark, í stað þess að fá 25.
- Þú hefur aðeins 18 sekúndur til að gera á borði sem er Án-takmarks eða Pott-takmarks í stað Þess að fá 35.
- Þú fær einungis 1 sekúndu til að ákveða að sýna eða hauga (e. „muck“) spil í stað þess að fá þrjár.
- Pottinum er úthlutað enn hraðar til sigurvegara í lok handar.
- Hólmurinn (e. „Showdown“) gengur enn hraðar fyrir sig; 2 sekúndur þá, en ekki 4.
Þar að auki er þess krafist að blindfé sé vélpóstað (e. „auto-post“) á hröðum borðum. Þegar þú sest fyrst við borðið er sjálfvirkt valið „bíða eftir stóra-blind“ (e. „Wait for Big-Blind“) og mun hugbúnaðurinn svo sjálfvirkt pósta blindum þegar kemur að þér að gera slíkt. Ef þú kýst að byrja strax að spila í þeirri stöðu sem þú ert, taktu þá hakið úr þar sem stendur „Wait for Big-Blind“ og þú munt fá gefin spil um leið og það er mögulegt og blindfénu þínu er póstað þá strax.
Ef þú vilt svo taka þér hlé frá leiknum, á meðan leikurinn er í gangi hakaðu þá við „sit out next round“ og þú munt sitja hjá út umferðina, allt þar til blindir hafa farið hring og komið er aftur að þér að pósta blindfé. Ef þú ert ekki búinn að taka hakið úr því að sitja hjá í umferð þá breytist staða þín í að þú sitjir hjá (e. „Sitting Out“).
Tekja í pókersalnum (e. Poker Room Rake)
PokerStars fær þóknun af því að hýsa pókerleiki af svokallaðri tekju (e. „rake“). Tekjan úr hverju spili er misjöfn eftir tegundum leikjanna sem spilaðir eru. Tekja er örlítið hlutfall (í flestum tilvikum) sem tekið er af innskotum leikmanna (5% eða allt að hámarki $3) af hverjum potti. Fyrir nánari útlistun á því hvernig þessi tekja skiptist upp mælum við með að þú kynnir þér síðuna pókertekja. Í mótum er eingöngu tekið fast skráningargjald við innskráningu og síðan er ekki tekin nein tekja af pottum í mótinu sjálfu.
Vonandi höfum við náð að svara hér þeim spurningum sem hafa vaknað hjá þér um Pókersalinn á PokerStars. Þú getur hlaðið niður hugbúnaðinum okkar núna til þess að hefja leik, hvort heldur sem það er á frípókerborðunum okkar eða peningaleikjaborðum. Þú getur einnig kynnt þér frekar ýmis tilboð sem notendum okkar standa til boða, eins og VIP Klúbburinn, „Stellar Rewards“ og mörg önnur spennandi tilboð sem hægt er að lesa um á kynningarsíðunni okkar. Við höfum lagt hart að okkur við að gera PokerStars að besta netpókersalnum sem völ er á. Við vonumst því til að sjá þig við spilaborðin sem fyrst!




