Play Poker - Download Now

Pókerspil - algengar spurningar

Almennar spurningar um PokerStars:

  • Hverjir eru þjónustuskilmálar ykkar?
  • Vinsamlegast lestu síðuna Þjónustuskilmála pókervefsvæðisins.
  • Hvernig getið þið tryggt að spil hjá ykkur fari heiðarlega fram?
  • PokerStars setur öryggi pókerspila sinna framar öllu. Við notum fullkomnustu tækni til að tryggja öryggi í spilunum okkar. Vinsamlegast farðu á öryggissíðuna okkar til að fá nákvæmar upplýsingar. Ef þú ert með frekari spurningar hikaðu þá ekki við að hafa samband við okkur.
  • Ég hef hlaðið niður skránni PokerStarsInstall.exe en nú finn ég hana ekki.
  • Í Windows skaltu smella á valmyndina Ræsa (Start), velja Leita (Search) og smella svo á Skrár (Files) eða Möppur (Folders). Í reitinn Heiti: (Named:) skaltu skrifa PokerStarsInstall.exe. Tölvan er smástund að finna skrána. Þegar skráin er fundin tvísmellir þú á hana og þá hefst uppsetningarferlið.
  • Mig langar að spila undir mismunandi nöfnum. Get ég verið með fleiri en einn pókerreikning?
  • Nei. Hver spilari má aðeins hafa einn reikning. Ekki er leyft að notandi loki reikningi sínum og opni annan. Þegar þú hefur stofnað reikning getur þú ekki breytt notandaauðkenni þínu svo að þú skalt velja það vandlega.
  • Ég gleymdi aðgangsorðinu mínu!
  • Þú getur endurstillt aðgangsorðið þitt handvirkt með því að fara á aðalskjá hugbúnaðarins, smella á „Lobby“ (anddyri) og síðan „Login“ (skrá inn) og loks á „Forgot Password“ (gleymdi aðgangsorði). Færðu inn viðeigandi upplýsingar og þá verður nýtt aðgangsorð sent á netfangið sem þú skráðir fyrir PokerStars. Ef þú gerir þetta en færð samt villuboð skaltu senda tölvupóst á tölvupóststuðning með fullu nafni, heimilisfangi og notandaauðkenni á PokerStars og við munum hjálpa þér að komast aftur í spilin.
  • Hvernig get ég hjálpað til við að halda PokerStars-reikningi mínum öruggum?
  • Vernd aðgangsorðs er á þína ábyrgð. Aldrei láta neinn hafa PokerStars-reikningsupplýsingar þínar. Við munum aldrei biðja þig um að senda aðgangsorð til okkar, og eina skiptið sem þú þarft að nota það er við innskráningu í PokerStars-pókerhugbúnaðinn. Við mælum með að þú breytir aðgangsorðinu þínu reglulega.
  • Ég fæ ekki PokerStars-tölvupóst í innhólfið mitt.
  • Þetta gæti verið vegna þess að tölvupóstveitan þín merkti PokerStars-tölvupóst sem ruslpóst. Ef hlutum er þannig háttað er auðvelt að leiðrétta þá, leiðbeiningar eru á internet-tölvupóstsíðunni.
  • Get ég breytt tungumáli hugbúnaðarins?
  • Já, þú getur gert það. PokerStars býður yfir tólf tungumál á hugbúnaði sínum. Þú velur annað tungumál með því að velja „Language” (tungumál) efst í aðalanddyrinu og síðan „Play In” (spila á). Þá birtist valmynd með tungumálum sem hægt er að velja um. Athugaðu að sum tungumálin fást aðeins í beta-útgáfu, þannig að einhver skilaboð gætu verið á ensku.
  • Hvernig get ég tryggt að ég fái alltaf tölvupóst á því máli sem ég kýs?
  • Opnaðu bara PokerStars-hugbúnaðinn og skráðu þig inn. Farðu síðan á „Languages“ (tungumál) og veldu „Email in“ (tölvupóst á). Veldu síðan tungumál af listanum.
  • Hefur þetta áhrif á málið sem ég fæ yfirlit yfir fyrri hendur á?
  • Nei. Tungumál tölvupósts, yfirlits yfir fyrri hendur og hugbúnaðarins eru alveg sjálfstæð. Ef þú vilt skipta um tungumál á yfirliti yfir fyrri hendur skaltu annaðhvort smella á yfirlitstenglana efst til vinstri í borðglugganum eða á spilapeningarekkann og síðan á „Instant Hand History” (stutt yfirlit yfir fyrri hendur). Glugginn „Instant Hand History“ opnast. Smelltu á „Options” (valkostir) og veldu síðan tungumál af fellilistanum.
  • Bjóðið þið hugbúnaðarútgáfu fyrir Mac?
  • Já. Ef þú vilt hlaða niður Mac-spilabiðlarann okkar skaltu opna Mac-niðurhalssíðuna okkar.
  • Hvar get ég fundið meiri upplýsingar um spilahugbúnað ykkar?
  • Ef þú hefur enga reynslu af PokerStars leggjum við til að þú horfir á sýndarskoðunarferðina okkar og skoðir kennslumyndböndin, þar sem Daniel Negreanu í Team PokerStars Pro er leiðbeinandi. Þegar þú hefur hlaðið niður hugbúnaðinum og prófað hann getur þú farið á PokerStars-síðuna Sérstakir eiginleikar, og lesið þar um fullt af sérstökum eiginleikum sem við bjóðum, þar á meðal anddyris- og borðþemu, síunar- og röðunarvalkosti og margt fleira.
  • Hvað um TestPokerStars? Hvað er það?
  • TestPokerStars er sérstakt spilaforrit sem PokerStars notar til að prófa nýja eiginleika. Þar eru aðeins gervipeningaspil, með sérstakri gervipeningainnistæðu. Margir spilarar okkar hjálpa okkur að prófa nýja eiginleika með því að spila á TestPokerStars. Þér er velkomið að hjálpa okkur að prófa líka, svo framarlega sem þú ert með PokerStars-reikning í góðu lagi.

    Ef þú vilt prófa farðu þá á vefsvæði TestPokerStars og sæktu hugbúnaðinn. Áður en þú notar TestPokerStars-forritið skaltu gæta þess að lesa Skilmálana og skilyrðin og allar aðrar reglur. Þú getur notað sama notandaauðkenni á TestPokerStars-svæðinu en þú þarft annað aðgangsorð; farðu eftir fyrirmælunum á uppsetningarsíðu TestPokerStars til að fá það.

    Hafðu í huga að þetta er prófunarforrit svo að þú getur búist við vandamálum af og til og að það sé ekki alltaf tiltækt. Ef þú vilt gera athugasemdir við nýja eiginleika (sérstaklega villur) skaltu senda tölvupóst á support@testpokerstars.com.
Back to top

Pókerspil:

  • Hvað gerist ef nettengingin rofnar hjá mér í miðri hendi?
  • Stundum gerist það að af ástæðum sem ekki eru á valdi spilara okkar að þeir geta ekki unnið tímanlega úr pókerhendi sinni. Á PokerStars fær spilari í hring (ekki móti) 25 sekúndur til að vinna úr hendi sinni, ef um er að ræða pókerspil með föstu hámarki, og 35 í póker með potthámarki eða engu hámarki. Viðvörunarboð birtast í spjallreitnum þegar 15 sekúndur eru eftir til að gera. Ef tenging rofnaði og spilarinn kom aftur fyrir tímamörkin fær hann að minnsta kosti 10 sekúndur til að gera. Minni tími er gefinn til að gera á borðum sem eru skilgreind sem „hröð“ („fast“).

    Spilari fær 25 sekúndur til að gera ef um er að ræða pókerspil með föstu hámarki og 35 í pókerspili með potthámarki eða engu hámarki. Viðvörunarboð birtast í spjallreitnum þegar 15 sekúndur eru eftir til að gera. Ef tenging rofnaði og spilarinn kemur aftur fyrir tímamörkin fær hann að minnsta kosti 10 sekúndur til að gera.

    Ef spilari nær ekki að gera innan tiltekins tíma meðan hann er tengdur fellir kerfið höndina niður.

    Viðbótartími kann að vera gefinn í sumum leikjum, eftir aðstæðum. Lengd aukatímans getur verið breytileg eftir leiknum, en hugmyndin er ætíð sú sama – þegar staðið er frammi fyrir ákvörðun og potturinn stór er gefinn meiri tími til að koma aftur vegna rofs á tengingu.

    Athuga skal að mót gefa ekki aukatíma vegna rofs á tengingu, í flestum tilvikum. Nákvæmar upplýsingar um viðbrögð vegna rofs á tengingu í mótum eru á síðu okkar, Pókermótareglur, sjá einkum reglu 8 (Rof tenginga).
  • Pókerspilið sem mig langar að taka þátt í er fullt. Hvað á ég að gera?
  • Ef pókerspil er fullt getur þú sett nafn þitt á biðlista þess spils. Þegar sæti í spilinu verður tiltækt fær sá fyrsti á biðlistanum fyrsta rétt til að hafna því sæti eða taka það.

    Annar kostur fyrir þig er að setjast við autt borð með þessu hámarki og spili. Oft eru auð borð fljót að fyllast þegar spilari hefur fengið sér sæti.
  • Hvert er lágmarksinnkaupsgjaldið?
  • Lágmarksinnkaupsgjaldið við öll hámörk er tíu sinnum lágmarksveðmálið fyrir þann leik. Í $1/$2 spili t.d. er lágmarksinnkaupsgjaldið $10.
  • Hvað er „rake“? Hversu hátt er „rake“ hjá PokerStars?
  • PokerStars er internetpókersalur, ekki spilavíti. Það merkir að þú spilar aldrei póker við húsið, eingöngu við aðra pókerspilara. PokerStars fær þóknun með því að taka örlítinn hlut af hverjum hringpotti – kallað „rake“ á ensku. Þessi hluti af pottinum fer aldrei yfir $5. Við lægri mörk tekur PokerStars lægri hlut. Nákvæmar upplýsingar um gjaldið („rake“) sem við tökum er á Gjaldssíðunni.

    Ekkert gjald („rake“) er í gervipeningaspilum. Ekki er tekið gjald „á hverja hönd“ er tekið í mótum; þar er eingöngu innheimt upphafsgjald til að komast inn. Í sumum mótum er ekki tekið upphafsgjald eða hlutur („rake“).
  • Hvernig veit ég hversu miklir peningar eru í pottinum?
  • Á öllum PokerStars-borðum er heildarupphæð pottsins, með öllum gildandi veðmálum, alltaf birt í tölustöfum efst á borðinu, yfir bakka gjafarans eða hnappnum Options (valkostir). Í lok hverrar veðumferðar er einnig öllum veðmálum safnað saman á miðju borðinu og skipt í spilapeninga með hærri gildum svo að auðvelt er að sjá heildarvirði pottsins.
  • Getur pókerhugbúnaðurinn látið mig klúðra vinningshendi?
  • Nei, hann getur það ekki. Ef þú spilar hönd þína þangað til þú sýnir hana og ert með vinningshönd er það alltaf sjálfkrafa sýnt. Þetta hindrar að þú klúðrir óvart vinningi.
  • Hvernig bið ég um yfirlit yfir fyrri hendur? Hversu mörg yfirlit get ég beðið um?
  • Smelltu á gjafarabakkann og veldu „Request hand history“ (biðja um yfirlit yfir fyrri hendur). Þú getur beðið um allt að 200 hendur, yfirlit yfir tiltekið tímabil, allar hendur sem þú hefur spilað í móti, eða einhvera tiltekna hönd. Athugaðu samt að við varðveitum ekki yfirlit yfir fyrri hendur þegar spilað er með gervipeningum eða á fríaðgangsmótum og því er ekki hægt að biðja um slíkar hendur.

    Þú getur einnig beðið um yfirlit yfir fyrri hendur í anddyri PokerStars. Í valmyndinni Request (biðja um) velur þú Hand History (yfirlit yfir fyrri hendur).

    Við bjóðum einnig upp á „Instant Hand History“ (IHH) (stutt yfirlit yfir fyrri hendur) á öllum borðum svo að þú getir skoðað nýjustu hendur þínar (jafnvel í fríaðgangsmótum og á gervipeningaborðum). Þú opnar þessa aðgerð með því að smella á handanúmerin efst til vinstri á borðinu. Gluggi opnast þar sem þú sérð textaútgáfu af höndum þínum. Smelltu á hnappinn „Options” (valkostir) til að vista stutta yfirlitið í skrá. Þú getur einnig opnað IHH (stutt yfirlit yfir fyrri hendur) með því að smella á hnappinn „Dealer Chip Tray“ (spilapeningarakki gjafara) eða „Options“ (valkostir) efst á borðinu og velja „Instant Hand History” (stutt yfirlit yfir fyrri hendur).

    Með hnappnum „Visualize“ (sýna á mynd) í IHH (stutt yfirliti yfir fyrri hendur) getur þú endurspilað hönd myndrænt í nýjum glugga. Þú getur líka „endurspilað“ síðustu hönd með því að smella á rauða hnappinn við handanúmerin á borðinu.
  • Hvernig bið ég um talnagögn yfir pókerspil mín?
  • Smelltu á gjafarabakkann og veldu „Request statistics“ (biðja um talnagögn). Þú getur beðið um talnagögn yfir hendur sem þú hefur nýlega spilað eða jafnvel heildartölur fyrir reikninginn þinn!

    Þú getur einnig beðið um talnagögn í PokerStars-anddyrinu. Í valmyndinni Request (biðja um) skaltu velja Statistics (talnagögn). Athugaðu að tölur eru ekki fáanlegar yfir gervipeningahendur; þær eru ekki geymdar í gagnagrunninum.
  • Hvað eru FPP-punktar? Hvernig get ég notað þá?
  • „Frequent Player Points“ (FPP) eru spilarapunktar sem þú vinnur þér inn með því að spila hendur sem gjald („rake“) er tekið af á pókersvæði okkar, eða í mótum með peningagjaldi. Þeir eru notaðir í tengslum við tilboð okkar og kynningar og VIP-klúbbskerfi okkar sem hefur náð yfir PokerStars Caribbean Adventure, World Series Main Event Millionaire's Quest og World Championship of Online Poker. Á Ókeypis nettilboð og fríaðgangsmót eru nánari upplýsingar um það hvað FPP-punktar eru, hvernig þeirra er aflað og til hvers má nota þá.
  • Ég sé „N“ fyrir neðan myndir sumra spilara ... hvað merkir það?
  • Það merkir að þú hefur gert athugasemd (e. note) um þennan spilara einhvern tíma og hún er geymd til að þú getir skoðað hana.
  • Get ég spilað við sama borð og vinur minn?
  • Já. PokerStars tekur fagnandi á móti vinum, ættingjum og kunningjum sem vilja spila við sama borð. En þegar þú gerir þetta er ætlast til að þú keppir af sömu hörku á móti vini þínum og öllum öðrum spilurum og þið megið ekki skiptast á upplýsingum um spilin ykkar eða gera með ykkur neina leynilega samninga (það er samsæri og er stranglega bannað).

    Ef þú hefur samið við vin þinn um að deila með ykkur peningum, fé sem lagt er undir eða að skipta með ykkur ágóða leyfa reglur okkar um heiðarlegan leik ekki að þið spilið við sama borð með raunverulegum peningum eða í sama „Sit & Go“ móti.

    Spilarar sem búa á sama heimili, hver sem tengsl þeirra eru, mega ekki spila við sama borð með raunverulegum peningum eða í sama „Sit & Go“ móti. Í sumum tilvikum eru þessi takmörk sett sjálfkrafa í spilahugbúnaðinum.
Back to top

Netpókerspjall:

  • Hverjar eru spjallreglur ykkar?
  • Viss form og umræðuefni spjalls eru ekki leyfð á PokerStars. Spilarar sem gerast sekir um móðgandi spjall geta fengið viðvörun eða misst spjallréttindi sín, eða fengið aðra refsingu sem leyfð er í lögum og/eða undir Leyfissamning notenda sem er í gildi hjá okkur. Öll notkun á borðspjallinu og raddspjallinu ætti að fara fram á ábyrgð spilarans sjálfs en fellur undir þær reglur sem gilda um notkun á spjallinu og Leyfissamning notenda hérna.

    Spjall sem leyfist ekki á PokerStars er meðal annars (en ekki eingöngu):

    Gróft orðbragð: Við leyfum ekki særandi, gróft eða móðgandi spjall eða kynþáttafordóma í spjallgluggum okkar. Við erum með aðgerð sem afritar stjörnur yfir óviðurkvæmileg eða að öðru leyti óviðunandi orð. Síað orð er orð sem eitthvert pókersvæði okkar hefur úrskurðað óviðunandi. Spilarar sem reyna að komast fram hjá síunni geta fengið viðvörun eða misst spjallréttindi sín.

    Betl/bónbjargir: Við leyfum spilurum ekki að betla eða biðja um spilapeninga, hvort heldur sem er gervipeninga eða raunverulega. Ekkert betl leyfist nokkurn tíma í neinum pókerleik. Við erum með aðgerðir til að hindra margs konar betl.

    Sala gervipeninga: Spilarar mega ekki eiga í neinum viðræðum um sölu PokerStars-gervipeninga á spjallstöðum okkar. Allar slíkar umræður, þar á meðal tilboð um að kaupa eða selja gervipeninga á PokerStars-spjalli, sæta viðvörun eða ógildingu.

    Flaumur: Sending margra og tíðra skeyta í spjallgluggann til að drekkja löglegu spjalli er bönnuð.

    Spjall sem er ekki á ensku: Við vitum að spilarar okkar eru hvaðanæva að úr heiminum og margir þeirra hafa ekki ensku að móðurmáli. Samt er það stefna okkar nú á flestum borðum að enska skuli vera eina tungumálið sem leyfist í PokerStars-spjalli. Á fáeinum borðum og örfáum svæðisbundnum mótum kann spjall að vera leyft á tilteknu tungumáli og ensku. Þessi borð og mót verða greinilega merkt. Ef þú sættir þig ekki við spjall sem er ekki á ensku skaltu ekki taka þátt í slíkum borðum eða mótum.

    Notkun til kynningar: Það er stranglega bannað fyrir Notanda að nýta sér SPjallið til nokkurs konar kynningar eða sölu af neinu tagi, þar á meðal að halda fram fullyrðingum sem koma á framfæri upplýsingum um vöru eða þjónustu af einhverju tagi frá aðilum öðrum en PokerStars.

    Meiðandi hegðun: Það er stranglega bannað fyrir Notanda að nýta sér spjallið til nokkurskonar meiðandi, særandi eða móðgandi hegðunar, þar á meðal, en ekki takmarkað við til samráðs, svindls, amapóstunar (e. spam), og/eða áreitis. Notendur eiga ekki að halda fram fullyrðingum um PokerStars sem ekki eru sannar eða hægt væri að túlka sem niðrandi eða gagnrýnar. Notendur ættu almennt að vera meðvitaðir um tilfinningar annarra viðskiptavina og starfsfólks PokerStars og Spjallvarða og ættu að temja sér hóflega og kurteisa framkomu.

    Við hvetjum þig einnig til að kynna þér og fara yfir Reglur í spilasalnum.
  • Hvað á ég að gera ef einhver er að misnota spjallið?
  • PokerStars fylgist ekki með beinum hætti með spjallinu við borðin, en við gætum þó farið yfir spjallskrána síðar ef á þyrfti að halda. Viðvaranir og brottvísanir/útilokanir frá spjallréttindum í ákveðinn tíma gætu verið ein af refsingunum fyrir að hafa brotið á reglum sem gilda um spjallið.

    Á öllum opnum PokerStars-borðum er hægt að kalla upp spjallumsjónarmann sem kemur að borðinu og reynir að leysa málið. Þú kallar á spjallumsjónarmann með því að smella á hnappinn „Dealer Chip Tray“ (spilapeningarekki gjafara) eða „Options“ (valkostir) efst á skjánum og smella á hnappinn “Call Moderator” (kalla á umsjónarmann). Athugaðu að spjallumsjónarmenn fást eingöngu við spjallvandamál; varðandi önnur vandamál skaltu hafa samband við support@pokerstars.com.

    Ef hnappurinn „Call Moderator“ (kalla á umsjónarmann) er ekki tiltækur á borðinu þínu skaltu tilkynna mál eins og hér hafa verið rakin til support@pokerstars.com

    Við hvetjum spilara til að vera augu okkar og eyru í þessum málum. Þó að við fylgjumst með borðunum af fremsta megni er samvinna spilara okkar mikilvæg í þeirri viðleitni að gera PokerStars skemmtilega upplifun fyrir alla. Reyndu vinsamlega að svara ekki í sömu mynt; það getur orðið til þess að báðir notendur verði reknir af spjallinu.

    Þú getur útilokað skeyti frá tilteknum spilara með því að hægrismella á tákn hans og velja „Block Chat“ (loka fyrir spjall).

    Spjallreglunum er almennt ekki fylgt eftir innan Home Games.
  • Hvað um Raddspjallið?
  • Á ákveðnum opnum borðum og í Home Games, þá geta spilarar virkjað Raddspjall. Spilarar sem spila á borðum, eða eru að fylgjast, þurfa að vera meðvitaðir um að ekki gæti verið hægt að framfylgja spjallreglunum samstundis eða á meðan leik stendur, svo spilari ætti eingöngu að nota Raddspjallið ef hann treystir sér til þess undir slíkum aðstæðum. Starfsfólk PokerStars getur valið að fylgjast með Raddspjallinu og getur lokað á eða tekið spjallréttindi af notendum við öll borð kjósi það slíkt, en umsjónarmennirnir hafa algjört sjálfdæmi um slíkt og mega gera það af hvaða ástæðu sem þeim þykja gefa tilefni til þess, eins og til dæmis ef brotið hefur verið á spjallreglunum, á leikreglum eða af hvaða ástæðu annarri.
    Aftur efst á síðu
Back to top

Myndir:

  • Hvernig geri ég mynd fyrir mig?
  • Í reikningsvalmyndinni í PokerStars-anddyrinu skaltu velja „Select/Change Image“ (velja/breyta mynd). Smelltu á „Select Image“ (velja mynd) og veldu mynd af harða diskinum þínum. Ósiðlegar eða óviðeigandi myndir eru ekki leyfðar, né myndir með vefslóðum. Því er farið yfir allar myndir og þegar þær hafa verið sendar birtast þær ekki á reikningi þínum fyrr en eftir nokkra daga. Nánari upplýsingar um myndir og hvernig hægt er að taka mynd af internetinu og nota sem PokerStars-mynd eru á Myndasíðunni.
  • Mér finnst myndirnar á borðinu truflandi. Hvernig slekk ég á þeim?
  • Í valmyndinni „Options“ (valkostir) í PokerStars-anddyrinu skaltu velja „Images“ (myndir). Þá er slökkt á myndum næst þegar þú ert með í eða horfir á pókerspil. Þú getur fengið myndirnar aftur upp hvenær sem er með því að velja „Images“ (myndir).

    Þú getur líka lokað á mynd tiltekins spilara með því að hægrismella á tákn hans og velja „Block Image“ (loka fyrir mynd).
  • Mér líkar ekki lengur myndin sem ég valdi. Get ég skipt um mynd?
  • Já, þú getur skipt um mynd með því að velja „Select/Change Image“ (velja/breyta mynd) í reikningsvalmyndinni í PokerStars-anddyrinu. En þú getur aðeins skipt einu sinni um mynd, svo að við mælum með að þú hugsir þig vel um.
Back to top

Hússpilarar/lepphugbúnaður:

  • Notar PokerStars lepphugbúnað eða hússpilara?
  • PokerStars notar ekki neina hússpilara eða lepphugbúnað. Við erum ekki með neitt fólk í vinnu við að spila á svæðinu okkar.
  • Er starfsfólki PokerStars leyft að spila á svæðinu ykkar?
  • Nei. Enginn starfsmaður PokerStars eða verktaki sem hefur aðgang að innanhússupplýsingum (spilaraskrám, földum yfirlitum yfir fyrri hendur o.s.frv.) má spila á PokerStars. Þetta er til að fyrirbyggja alla misnotkun þessara innanhússupplýsinga. Í rauninni mega nánir ættingjar þessa fólks ekki spila á PokerStars.
  • Ég sé að margir frægir spilarar (eins og Chris Moneymaker, Greg Raymer, Tom McEvoy og Joe Hachem) eru fulltrúar PokerStars á mörgum mótum og spila í vikulegum áskorendamótum á móti spilara í forystu á vikulegu móti. Þeir tengjast greinilega PokerStars. Hvers vegna fá þeir að spila póker með raunverulegum peningum á svæðinu ykkar?
  • Þetta fólk (og allir meðlimir Team PokerStars Pro) er á samningi við PokerStars um að vera sendifulltrúar PokerStars á þeim sjónvarpsmótum sem þeir spila á um heim allan. Þeir spila einnig á PokerStars því að margir spilarar hafa beðið okkur um tækifæri til að spila póker við fræga spilara. Þessir spilarar hafa alls ekki neinn aðgang að neinum upplýsingum umfram aðra PokerStars-spilara. Þeir eru greinilega auðkenndir og þú getur ákveðið hvort þú vilt spila við sama borð og þessir spilarar eða ekki.

    Engin krafa er gerð um að þessir spilarar spili einhvern tiltekinn fjölda klukkustunda á PokerStars og þóknun þeirra fer ekki eftir því hversu mikið eða lítið þeir spila á svæðinu okkar. Loks má geta þess að þegar meðlimir Team PokerStars Pro spila í stökum spilum og mótum á PokerStars spila þeir upp á eigin peninga, fyrir utan vikulegu áskorunina og aðra slíka kynningarviðburði. PokerStars á engra hagsmuna að gæta varðandi það hvort þeir vinna eða tapa þessum keppnum.
Back to top

Pókermót:

  • Hvar get ég séð væntanleg pókermót?
  • Þú getur skoðað væntanleg pókermót með því að velja „Tourney“ (mót) í aðalanddyri PokerStars. Þú sérð öll pókermót sem eru í gangi („Running”), nýlokin pókermót („Completed“) og pókermót sem byrja fljótlega („Registering“ (skráning í gangi) eða „Announced“ (tilkynnt)). Nánari upplýsingar fást með því að auðkenna mót með því að smella á það og velja síðan Tournament Lobby (mótaanddyri).
  • Hvernig skrái ég mig í pókermót?
  • Ef pókermót er með stöðuna „Registering“ (skráning í gangi) eða „Late Reg“ (síðbúin skráning) skaltu auðkenna mótið með því að smella á það og smella síðan á hnappinn „Tournament Lobby“ (mótaanddyri). Þegar skjárinn „Tournament Lobby“ opnast skaltu smella á Register (skráning). Þú þarft að skrá þig inn ef þú hefur ekki þegar gert það fyrir þessa lotu.

    Nánari leiðbeiningar eru á Spila PokerStars-mót.
  • Get ég spilað í stöku spili og pókermóti samtímis?
  • Já, þér er velkomið að spila í stöku spili og pókermóti samtímis? Svo að sanngirni sé gætt gagnvart öllum spilurum biðjum við þig að bregðast tafarlaust við þegar þú átt að gera í báðum pókerspilunum.
  • Ég spilaði á pókermóti fyrir nokkrum dögum og upplýsingarnar sjást ekki lengur í anddyrinu. Hvernig sæki ég þær?
  • Í valmyndinni Requests (biðja um) í PokerStars-anddyrinu skaltu velja Tournament History (mótasaga). Þú getur valið mörg mót sem þú hefur spilað í eða eitt tiltekið mót.
  • Ef ég stend frammi fyrir erfiðri ákvörðun í pókermóti, get ég þá „beðið um tíma“?
  • Allir mótaspilarar fá „tímabanka“ í upphafi mótsins. Ef spilari þarf lengri tíma en venjulega til að ákveða sig getur hann tekið út úr tímabankanum, sem gengur á eftir því sem spilarinn notar hann í spilinu. Til að nota tímabankann smellir þú á hnappinn „TIME“ (tími) sem birtist eftir að þú færð fyrstu tímaviðvörunina í spjallglugganum. Athugaðu að þegar þú hefur eytt upp tímabankanum er ekki hægt að leggja inn í hann aftur, hvorki sjálfkrafa né getur starfsfólk PokerStars gert það, svo að þú skalt fara sparlega með hann.
  • Hvað gerist ef kerfið hrynur í miðju pókermóti?
  • Ef þjónn hrynur verða hendurnar sem eru í gangi á hverju borði endurheimtar með því að rekja þær til baka. Spilapeningafjöldi hvers spilara verður stilltur á upphæðina í upphafi handarinnar. Við sérstakar aðstæður, ef aflýsa verður pókermóti vegna hruns eða af öðrum ástæðum, verður spilurum bætt tjónið samkvæmt reglum PokerStars um aflýsingu pókermóts.
  • Ég fékk inngöngu í mót en get ekki lengur spilað í því... hvað geri ég?
  • Það fer eftir því hvers konar atburður þetta er.

Back to top

Gervipeningapókerspil:

  • Get ég byrjað að spila póker á PokerStars núna?
  • Auðvitað! Settu upp ókeypis PokerStars-pókerhugbúnaðinn og byrjaðu að spila. Þetta er svo einfalt og þægilegt að þú getur byrjað að spila eftir fáeinar mínútur!
  • Hversu marga gervispilapeninga byrja ég með? Hvað ef ég verð uppiskroppa með spilapeninga?
  • Þér færð 1.000 gervispilapeninga til að byrja með. En ef þú ferð einhvern tíma undir 100 stykki smellir þú einfaldlega á gjafarabakkann og velur „Add More Chips...“ (fá fleiri spilapeninga)

    Þessi endurkaupaaðgerð er til að birgja spilara sem í rauninni hefur misst alla sína spilapeninga upp spilapeningum á ný. Nýju 1.000 stykkin eru aðeins fyrir þennan notanda. Endurkaup í öðrum tilgangi en þessum varða útilokun.

    Athugaðu að þú mátt aðeins endurnýja spilapeningana þína allt að þrisvar sinnum á klukkustund. Þessi regla á að hvetja menn til að taka spilamennskuna „alvarlega“. Ef þú nýtir þér endurkaupin þrjú verður þú að bíða í klukkutíma eftir að fá meiri spilapeninga.
  • Hvernig þekki ég borðin með gervispilapeningum?
  • Gervispilapeningaborðin má þekkja af því að þau eru auðkennd með orðinu „Fun“ (skemmtun). Í hold’em eru öll gervispilapeningaborð undir flipanum „Play Money“ (gervipeningar). Í öðrum spilum eru þau neðst á borðalistanum, fyrir neðan leikina með raunverulegum peningum. Ef þú sérð þau ekki skaltu gá hvort spilabiðlarinn þinn er ekki örugglega stilltur þannig að hann sýni gervispilapeningaborð. Til að gera það smellir þú einfaldlega á „Options“ (valkostir) í aðalbiðlaraglugganum og tryggir að valkosturinn „Show Play Money Tables“ (sýna gervispilapeningaborð) sé valinn.
Back to top

Peningapókerspil:

  • Get ég spilað fyrir alvöru pening?
  • Að sjálfsögðu! Þér er ekki undir neinum kringumstæðum skylt spila um raunverulega peninga, en ef þig langar til þess þá bjóðum við upp á fjölmarga leiki og mót fyrir þig. Fyrsta skrefið er að leggja pening inn á PokerStars reikninginn þinn.
    Þær leiðir sem þér standa til boða til að leggja inn eru mismunandi eftir því á hvaða svæði þú ert. Fyrir frekari upplýsingar um hvernig á að leggja inn, þá biðjum við þig vinsamlegast að fara á síðuna okkar sem við köllum Spilað upp á raunverulega peninga.
  • Hvers vegna er kreditkortinu mínu hafnað og hvað get ég gert?
  • Margir bankar eru með stefnu sem er andvíg pókerspili á internetinu, telja það of mikla áhættu. Þú gætir haft samband við bankann þinn til að athuga með reglur hans í þessum efnum.

    Við erum með margar aðrar öruggar innleggsleiðir. Nánari upplýsingar eru á síðunni okkar um peningapóker. Ef þú þarft hjálp við að leggja inn skaltu hafa samband við innleggsaðstoðardeild okkar (Deposit Assistance Department) á dad@pokerstars.com. Athugaðu að þessi þjónusta er hugsanlega ekki tiltæk fyrir öll lönd eða tungumál.
  • Mun PokerStars einhvern tíman krefja mig um að senda kreditkortaupplýsingarnar mínar með tölvupósti?
  • PokerStars mun aldrei biðja þig um að senda upplýsingar um greiðslukortin þín með tölvupósti. Viðskiptavinir ættu aldrei að senda kortanúmerin sín eða þriggja-stafa öryggiskóðann sem er á kortinu með tölvupósti.
  • Get ég millifært peninga á annan notanda eða tekið við millifærslu?
  • Já, þú getur gert það. Til að millifæra raunverulega pókerpeninga á PokerStars (Real Money Transfer) skaltu smella á „Requests“ (biðja um) og síðan „Transfer Funds” (millifæra peninga) í aðalbiðlaraglugganum. Millifærslur eru háðar samþykki öryggisdeildarinnar og geta tafist. Í sumum tilvikum kann að verða krafist frekari upplýsinga eða staðfestingar.
  • Er inneign mín á PokerStars notuð í rekstrarkostnað ykkar eða er hún geymd á sérstökum reikningi?
  • PokerStars er stolt af því að með sérstökum bankaráðstöfunum er fjárhæð sem jafngildir öllum innistæðum spilara haldið á sérstökum reikningum og er ekki varið í neins konar rekstrarkostnað. Þessir sérstöku reikningar eru í umsjón evrópsks fjármálaþjónustufyrirtækis í fremstu röð. Þessar ráðstafanir tryggja að PokerStars getur alltaf staðið við fjárhagslegar skuldbindingar sínar gagnvart pókerspilurum sínum og getur ennfremur tryggt að sjóðir spilaranna eru alltaf öruggir hjá PokerStars.
Back to top

Mikilvægast af öllu:

  • Hvers vegna ætti ég að spila netpóker á PokerStars?
  • PokerStars er stolt af öllu því sem við höfum gert til að þú getir notið eins ánægjulegrar og áreiðanlegrar spilamennsku og kostur er. Þetta merkir að úrvalsstarfsmenn eru í öllum deildum, hvort sem um er að ræða pókerhugbúnað, þjónustu við viðskiptavini eða tryggingu fyrir heiðarleika í hvívetna.

    En ekki láta orð okkar nægja. Skráðu þig inn í einhvern gervispilapeningaleik okkar. Taktu þátt í einhverju af mörgum aðgangsfríum pókermótum okkar þar sem við munum veita þúsundir í pókerverðlaunafé. Þú kemst að því að PokerStars er STAÐURINN til að spila póker á internetinu!

Ertu með spurningu sem við höfum ekki svarað? Þjónustudeildin okkar er opin allan sólarhringinn. Sendu okkur tölvupóst á support@pokerstars.com.

Efst á síðuna

Athugið að sumir tenglarnir á þessu svæði opna ensku útgáfuna af PokerStars
í nýjum glugga.

Um okkur | Skilmálar og skilyrði | Öryggi | Meðferð persónuupplýsinga | Svæðisyfirlit
Höfundarréttur © 2001- , PokerStars. Allur réttur áskilinn. Rational Entertainment Enterprises Limited, 33-37 Athol Street,
Douglas, IM1 1LB, Isle of Man. Leyfi endurnýjað 1. ágúst, 2010. Netveðmál eru háð reglum á eynni Mön eynni Mön.