Þjónusta PokerStars
Almennar spurningar
PokerStars býður með stolti upp á alhliða og trausta þjónustu og við erum reiðubúin að svara tölvupósti allan sólarhringinn, alla daga vikunnar. Það eina sem þú þarft að gera er að senda tölvupóst á support@pokerstars.com og starfsmaður þjónustuteymisins okkar svarar þér fljótlega.
Til að auðvelda okkur að svara eins fljótt og skilmerkilega og kostur er skaltu láta fylgja eins miklar upplýsingar og hægt er um spurninguna þína eða eftirgrennslan. Ef þú hefur til dæmis fengið villuboð eða lent í tæknilegum vandamálum skaltu láta skjámynd fylgja svo að við eigum auðveldara með að finna vandamálið og leysa það.
Áður en þú hefur samband við þjónustuteymið skaltu fara á síðuna Algengar spurningar til að gá hvort spurningunni þinni er svarað þar. Skoðaðu líka síðuna Pókersalur til að fá upplýsingar um spil sem eru í boði á PokerStars, þ.m.t. grunnreglur og gagnlegar ábendingar.
Hjálp við að leggja inn peninga
Ef þú þarft hjálp við að leggja peninga inn á gjaldkera PokerStars geturðu notað innleggsaðstoðardeild okkar DAD (Deposit Assistance Department). Ef þú hefur reynt að leggja inn en fengið höfnun verðurðu beðin/n um að færa inn símanúmer og tíma þegar við getum hringt í þig. Við höfum svo samband við þig og hjálpum þér að leggja inn. Ef þér býðst ekki þessi valkostur skaltu senda okkur tölvupóst á dad@pokerstars.com wmeð „Phone Request“ í efnislínunni og láta fylgja símanúmerið þitt og hentugan tíma. Vinsamlegast hafðu í huga að DAD býðst aðeins á ensku og spænsku eins og er.
Athugið að sumir tenglarnir á þessu svæði opna ensku útgáfuna af PokerStars
í nýjum glugga.




