Pókermót

PokerStars er besti staðurinn á internetinu til að spila í margra borða mótum, Sit & Go mótum og inngöngumótum. Pókermót byrja á því að allir spilarar hafa fastan fjölda spilapeninga og fylgt er útsláttarreglu þannig að síðasti spilarinn sem er eftir og heldur öllum spilapeningunum stendur uppi sem sigurvegari. Spilarar fá verðlaun samkvæmt lokastöðu sinni og heildarfjölda spilara.
Besta leiðin til að komast að því hvernig pókermót eru er að spila í móti. Opnaðu PokerStars-anddyrið og veldu annaðhvort „Tourney“ (mót), „Sit & Go“ eða „Events“ (viðburðir) til að fá upp lista yfir mót. Þegar þú hefur valið mót birtast upplýsingar um það hægra megin í anddyrinu – þar á meðal tegund leiks, innkaupsgjald og einnig staða, og hvort mótið er Announced (tilkynnt), Registering (skráning í gangi), Running (í gangi) eða Completed (lokið).
Til að skrá þig í mót skráir þú þig inn, velur mótið sem þú ætlar að spila í og smellir á hnappinn „Register“ (skráning). Þá ert þú sjálfkrafa sett/ur í viðkomandi mót rétt áður en það byrjar. Hvert mót er með anddyrisskjá sem er gagnlegur við að fylgjast með skráningartímum, útborgunarhætti og viðbótarupplýsingum.
Skoðaðu nánari upplýsingar um pókermót, þar á meðal mótareglur og verðlaunafyrirkomulag, svo og dagskrá yfir viðburði.
Tegundir móta
- Sit & Go
- Fifty50
- Steps
- Multi-Table Tournaments
- Shootout
- Satellite
- Flighted Tournaments
- Freerolls
- Rebuy
- Bounty
- Knockout
- Deep Stacks
- 6-Max and 4-Max
- Turbo
- 2X- and 3x Turbo
- Time Tourneys
- Guaranteed Tournaments
Sit & Go
Sit & Go mót fara ekki fram á fastákveðnum tíma eins og venjuleg mót, en byrja þegar öll sæti eru setin. Hægt er að spila þau með mismunandi sniði, svo sem heads-up (einvígi), single table (eitt borð) og multi-table (mörg borð). Þessar tegundir móta er að finna undir flipanum Sit & Go í aðalanddyrisglugganum.
FIFTY50
Fifty50 er ákveðin gerð af eins-borðs Sit & Go móti. Í Fifty50 Sit & Go, þá er viðburðinum lokið þegar helmingur þátttakenda er dottinn út. Til dæmis, í 10-spilara Fifty50 móti, þá fá 5 borgað. Helmingi verðlaunanna er skipt jafnt á milli allra 5 sigurvegaranna og hinum helmingi pottsins er skipt á milli þessara sömu spilara miðað við það hlutfall spilapeninga sem þeir höfðu þegar spilinu lauk. Þeir sem enda í 6.-10. sæti fá ekkert. Þannig að í 10-spilara $10+$1 Fifty50, er verðlaunapotturinn $100. Hver hinna síðustu 5 spilara sem klára mundu fá $10 hver um sig, plús prósentuhlutfall af þeim $50 sem eru eftir í pottinum. Þú getur fundið Fifty50 mótin undir ‘Sit & Go’ > ‘1-Table’ í anddyri PokerStars.
Sem ítarlegra dæmi getum við skoðað $300+$17 mót, þar sem eru tíu þátttakendur og heildarverðlaunapotturinn er $3.000. Hver spilari byrjar með 1.500 í spilapeningum.
| Dæmi | Spilap. | Spilap. % | Spilap.verðlaun. | +Innkaup | Heildarverðl. |
|---|---|---|---|---|---|
| Spilari 1 | 4.300 | 28,67% | $430 | +$300 | $730 |
| Spilari 2 | 3.600 | 24,00% | $360 | +$300 | $660 |
| Spilari 3 | 3.100 | 20,67% | $310 | +$300 | $610 |
| Spilari 4 | 2.300 | 15,33% | $230 | +$300 | $530 |
| Spilari 5 | 1.700 | 11,33% | $170 | +$300 | $470 |
| Samtals | 15.000 | 100,00% | $1.500 | +$1.500 | $3.000 |
Til að reikna verðmæti spilapeninga Spilara 1 þá margfaldarðu helming verðlaunapottsins ($1500) með hlutfalli Spilara 1 af heildarfjölda spilapeninga í umferð (4300/15000), sem er samtals $430. Bætir svo við það innkaupinu sem er skilað til hvers spilara sem nær í peningasæti og þá þýðir það að heildarverðlaunaupphæð spilara 1 er $730 ($430+$300). Formúla fyrir útborgun til einstakra spilara lítur því þannig út:

Mótaanddyri Fifty50 mótanna sýnir um það bil þá upphæð sem er greidd út á hverja 100 spilapeninga þegar mótinu lýkur. Verðgildið sem sýnt er í Fifty50 mótunum er rúnnað niður að næsta senti, en útborgunin reiknast samt þannig út að allur verðlaunapotturinn er borgaður út. Athugið samt að lokaútborgunartala getur sýnt smá mismunaáhrif rúnnunarinnar til þess að tryggja það að útborgunin nemi sömu upphæð og heildarpotturinn.
Vegna einstakrar uppbyggingar á útborguninni, þá gilda engin Fifty50 til stiga í neinum mótastöðutöflum (e. Tournament Leader Board points). Þú finnur Fifty50 mótin undir ‘Sit & Go’ > ‘1-Table’ í anddyri PokerStars.
Vinsamlegast athugið: Fifty50 mótin teljast ekki til neinna stiga í stöðutöflum (e. Tournament Leader Board points). Þau gilda ekki heldur í Battle of the Planets kynningunni.
Steps
„Steps“ er sérstök „stigskipt“ útgáfa af Sit & Go móti. Með því að spila í Steps (þrepamótum) getur þú gert smáfjárhæð að stórum vinningi með því að vinna þig upp af þrepi 1 upp á þrep 6. Aðgangur að þrepakerfinu byrjar frá aðeins $7,50 eða 500 spilarapunktum (FPP). Til að skrá þig í þrepamót velur þú flipana „Sit & Go“, „Satellite“ og síðan „Steps“ í PokerStars-anddyrinu.
Multi-Table Tournaments
Í multi-table tournaments (MTT), eða fjölborðamótum, þá keppa spilarar á mörgum borðum um spilapeninga hvers annars um leið og blindfé hækkar í þrepum. Þegar spilari hefur klárað spilapeningana sína þá hefur hann verið sleginn út úr mótinu. Að lokum, þegar nógu fáir spilarar eru eftir, þá mætast þeir á lokaborði, en þar vinnur sá einstaklingur sem tekist hefur að safna öllum spilapeningunum frá andstæðingum sínum.
Shootout
Shootout (útsláttur) er tilbrigði við margra borða mót þar sem spilað er sjálfstætt á hverju borði þar til einn spilari er eftir. Þessi spilari kemst þá á næsta stig þar sem hann spilar við aðra sigurvegara borða og svo er ferlið endurtekið þar til síðasta útsláttar borði er náð. Flest útsláttarmót hafa tvö eða þrjú stig en sum hafa fleiri.
Satellite (inngöngumót)
Inngöngumót er mót þar sem verðlaunin eru aðgangur að stærra móti. Til dæmis er innkaupsgjaldið í stærra mótið $200. Innkaupsgjaldið í inngöngumótið er $20. Af hverjum tíu þátttakendum fær einn aðgang að stærra mótinu. Mörg inngöngumót á PokerStars bjóða möguleika á að komast á sjónvarpsviðburði.
FLIGHTED TOURNAMENTS
Flighted tournament er eitt mót sem er spilað í fleiri hlutum. Spilarar geta valið um mismunandi upphafstíma (e. starting flights) sem hefjast á ólíkum tímum. Hver upphafstímahópur mun spila í jafn langan tíma og eftir það þá munu allir spilararnir sem eftir eru safnast saman í einn og sama lokahluta mótsins. Flighted tournaments, eða mót með ólíkum upphafstímum, gefa spilurunum okkar tækifæri á að hefja spilun í stærri mótum á þeim tíma, eða þeirri á dagsetningu sem hentar þeim best. Upphæðina sem spilari á í spilapeningum tekur hann svo að sjálfsögðu með sér áfram í næstu umferð.
Tökum sem dæmi, mót sem er með Flight 1A á föstudegi kl 12:00, Flight 1B á laugardegi klukkan 12:00 og Flight 2 á sunnudegi klukkan 12:00. Þar mundu spilarar spila í sex klukkustundir á föstudegi eða á laugardegi og svo myndu allir þeir spilara sem enn voru með að loknum sínum degi sameinast til þess að ljúka mótinu klukkan 12:00 á sunnudegi.
Þegar þú skráir þig í flighted mót þá skaltu getað spilað í seinni stigum mótsins. Þú getur ekki skráð þig úr leik fyrir Flight 2 (eða eftir það) í mótum sem eru með mismunandi upphafstímum.
Í sumum mótum með mismunandi upphafstímum er gefinn möguleiki á að vera með fleiri en eina skráningu inn í upphafstímana (e. first flights multiple-entries). Til dæmis, að ef þú spilar í Flight 1A og ert sleginn út þá mátt þú skrá þig aftur inn í Flight 1B og byrja aftur frá byrjun. Þú getur samt ekki tryggt þér sæti í næstu umferð oftar en einu sinni, þannig að ef þú lifir af Flight 1A, þá er þér ekki heimilt að skrá þig inn í Flight 1B í sama viðburði.
Freerolls (fríaðgangsmót)
Fríaðgangsmót eru mót sem ekki eru með neinum aðgangseyri og eru yfirleitt með peningaverðlaun. Þessi mót eru frábær leið til að vinna til verðlauna án þess að kosta neinu til. Þau er hægt að finna með því að smella á „Tourney“ (mót) og „Freeroll“ í PokerStars-anddyrinu.
Rebuy (endurkaup)
Endurkaupamót er mót þar sem spilarar geta keypt fleiri peninga eftir upphaflegu innkaupin. Mismunandi skilyrði eru fyrir endurkaupum eftir mótum. Endurkaupamót geta tilgreint fast endurkaupatímabil í upphafi mótsins þar sem hægt er að kaupa fleiri spilapeninga. Bent skal á að endurkaupaskilyrði eru ólík milli móta og alltaf er vert að kanna upplýsingar sérstaklega um hvert mót sem stefnt er á.
Bounty
Í bounty móti, eða móti með höfuðfé, þá eru sérstök peningaverðlaun veitt þeim aðila sem tekst að slá út einhvern ákveðinn spilara. Til dæmis, ef það er lagt fé til höfuðs ‘KidPoker’, þá mun hver sá, sem tekst að slá hann út úr mótinu, fá auka verðlaun, sem eru allt frá nokkrum dölum og upp í nokkur hundruð dali, allt eftir því um hvernig mót er að ræða!
Knockout
Í Knockout, eða útsláttarmóti, þá eru peningaverðlaun sett til höfuðs öllum spilurum sem borguðu sig inn í mótið. Í hvert sinn sem þér tekst að slá einhvern út úr mótinu þá vinnur þú peningaverðlaun! Allir spilararnir þurfa að borga auka innkaup þegar þeir skrá sig, sem svo stendur sem höfuðféð á þeim spilara. Til dæmis, í útsláttarmóti þá gætu heildarinnkaup verið $20+$5+$2, en þar af fara $20 í venjulega verðlaunapottinn, $5 eru svo höfuðfé hvers spilara og $2 eru mótsgjaldið.
Deep Stacks
Á Deep Stack mótum byrja spilarar með meira en hefðbundinn fjölda spilapeninga. Algengt er að á PokerStars Deep Stack mótum byrji spilarar með 5.000 spilapeninga. Auk þess er lengd hvers stigs aukin, yfirleitt úr 15 í 30 mínútur. Báðar þessar breytingar merkja að í Deep Stack mótum er meira spilað, sérstaklega á fyrri stigum mótsins, en í venjulegum mótum.
6-Max og 4-Max
Heitin 6-Max og 4-Max vísa til leyfilegs heildarfjölda spilara á hverju borði. Í 6-Max er hámarksfjöldi spilara á borði sex, en ekki átta eða níu eins og algengast er á öðrum PokerStars-borðum. PokerStars er einnig með 4-Max mót, með 4 sæti við hvert borð. Vinsamlegast athugið að í 4-Max mótum þá mun lokaborðið verða myndað þegar 5 spilarar eru eftir. Þetta er gert til þess að útiloka þann ójöfnuð sem kemur upp ef að á einu borði væri spilað 3-hent á meðan að hitt boðið þyrfti að spila Heads-up.
Turbo
Turbo tournaments eru með styttri stig en venjuleg mót, yfirleitt fimm mínútur en ekki 15 eins og venjulegast er hjá PokerStars, en það ýtir undir hraðari spilamennsku og styttri mót.
2X og 3X -Turbo
2x-turbo mót er sérstök tegund turbo-endurkaupamóts (yfirleitt inngöngumót, satellite) þar sem stigin hækka á „túrbóhraða“ en endurkaupatíminn er tvisvar sinnum lengri en í venjulegu turbo-endurkaupamóti. 3x-túrbó er svo með þrisvar sinnum lengra endurkaupatímabil. Gættu þess að skoða undir flipanum „Tournament Info“ (um mót) nákvæmar upplýsingar um skipulag 2X-Turbo móta.
TIME TOURNEYS
Time Tourney, eða tímatökumót er ákveðin gerð af mótum sem stenda bara yfir í fyrirfram ákveðinn tíma. Tíminn sem hver viðburður stendur yfir kemur fram í nafni hvers móts fyrir sig og í mótsanddyrinu. Þegar tímanum sem mótið átti að standa yfir er lokið þá mun spilið stöðvast og viðburðinum er lokið og allir spilararnir sem eru eftir munu fá verðlaununum skipt hlutfallslega miðað við þann fjölda spilapeninga sem þeir höfðu þegar spilinu lauk. Tímatökumót eru merkt sérstaklega með „klukku-merki“ í mótaanddyrinu.
Tímatökumót eru í gangi allan daginn og eru í boði með spilatíma upp á 15, 30, 60, 90, 120 og 180 mínútur.
Tryggð mót
Í mörgum peningamótum okkar er tryggt að verðlaunapotturinn nái að minnsta kosti þeirri upphæð sem tiltekin er. Algengar tryggingar eru allt frá $1.000 til $1.500.000 eða meira! Yfirlit yfir öll tryggð mót má fá með því að fara í anddyrið og velja „Tourney“ (mót) og síðan „All“ (öll) eða rita orðið „guarantee“ (tryggja) í mótasíuna.
Nánari upplýsingar má fá um allar tegundir móta og um mótareglur.
COLOR SCHEME
The following key describes the colors used to identify different types of tournament on PokerStars.
- Live viðburðir – mót merkt með fjólubláum eru almennt inngöngumót í stóra viðburði í borðapóker, eins og inn í helstu viðburði á European Poker Tour (EPT).
- Inngöngumót inn í netmót – þessi dökkblái litur er notaður til að auðkenna inngöngumót á netinu sem gefa sæti í netmótum, eins og í Sunday Million, Nightly Hundred Grand, o.s.frv.
- WCOOP / SCOOP viðburðir / inngöngumót – sum stórmót á netinu, eins og World Championship Of Online Poker (WCOOP) og SCOOP, sem og inngöngumótin í þau, eru merkt með skærum appelsínugulum lit.
- Frímót og leikpeningar – ef þú vilt fá tækifæri til að spila ókeypis, en samt eiga möguleika á að vinna eitthvað, þá skaltu leita að þessum brúnu litum inni í spilabiðlara PokerStars.
- Sérstök mót – skær, æpandi rauður litur er notaður til þess að auðkenna sérstaka viðburði í vikunni, eins og Sunday Million, Sunday Warm-Up, og Nightly Hundred Grand.
Litakortið eins og það er hér að ofan er eingöngu til upplýsinga og viðmiðunar og gæti tekið breytingum.
Stigatöflur yfir efstu spilara
PokerStars er vettvangur bestu netpókermótanna og stigatöflur yfir efstu spilara eru frábær leið til að sanna sig. Í hvert sinn sem þú verður meðal þeirra 15% þátttakenda sem eru efstir í venjulegu margra borða peningamóti færð þú að launum stigatöflupunkta sem raðast á eftirfarandi stigatöflur:
Vikuleg stigatafla
Þessi stigatafla tekur saman tíu bestu útkomur þínar í öllum mótum sem þú hefur spilað í milli 00:00:00 á sunnudegi og 23:59:59 á laugardegi (að bandarískum austurstrandartíma). Efsti maður á stigatöflu móta vikunnar spilar einvígi (heads-up) gegn meðlim Team PokerStars Pro þar sem minnst $1.000 eru í húfi.
Mánaðarleg stigatafla
Í mánaðarlegu stigatöflunni er miðað við 20 bestu útkomur þínar frá 00:00 fyrsta dag mánaðarins til 23:59 síðasta dag mánaðarins (að bandarískum austurstrandartíma). Spilarar sem verða meðal 200 efstu deila með sér $30.000 í peningaverðlaunum og efstu 1.000 spilararnir fá hver um sig miða á $20.000 mánaðarlegt stigatöflumót.
Árleg stigatafla
Þessi stigatafla gefur stærstu verðlaunin af öllum, fimm stimpla PokerStars-vegabréf. Því fylgir innkaupagjald, hótelgisting og dagpeningar á fimm stór sjónvarpsmót kostuð af PokerStars svo og World Series Of Poker*. Spilarar sem verða númer tvö og þrjú geta unnið þriggja og tveggja stimpla PokerStars-vegabréf. Í árlegu stigatöflunni er miðað við mótaárangur frá 00:00 fyrsta dag ársins til 23:59 síðasta dag ársins (að bandarískum austurstrandartíma).
Mótadollarar (T$)
Sem stærsta pókervefsvæði heims er PokerStars stolt af því að geta boðið hið þægilega mótadollara-kerfi. Þegar þú kemst á viðburð í gegnum inngöngumót (fyrir utan W$ viðburðina sem rætt er um hér á eftir) áttu kost á því að skrá þig úr grunnviðburðinum og fá mótadollara (T$). T$ er hægt að nota til að skrá sig í öll PokerStars-mót eða samsett mót, þar á meðal Sit & Go mót, sérstaka viðburði og inngöngumót.
W-dollarar (W$)
Auk mótadollara bjóðum við líka sérstaka W$, sem er hægt að nota til innskráningar í alla sérstaka PokerStars-viðburði, þar sem keppa þarf til aðgangs.
Meðal sérstakra pókerviðburða eru:
- PCA (PokerStars Caribbean Adventure)
- EPT (European Poker Tour)
- PokerStars WCOOP (World Championship of Online Poker)
- *WSOP (World Series of Poker)
- APPT (Asia-Pacific Poker Tour)
Skoðaðu nánar á hvernig þú getur notað W$ til skráningar á sérstaka viðburði.
*WORLD SERIES OF POKER og WSOP eru vörumerki Caesars License Company, LLC („Caesars“). Caesars styður ekki PokerStars eða vörur þess, þjónustu, tilboð eða mót fjárhagslega eða á annan hátt.
Athugið að sumir tenglarnir á þessu svæði opna ensku útgáfuna af PokerStars
í nýjum glugga.




