VIP-kerfið
Velkomin í VIP-klúbb PokerStars – BESTA viðurkenningarkerfið í netpóker. Þannig þökkum við þér fyrir að velja PokerStars sem netpókersalinn þinn. Hvort sem þú sækist eftir meira virði eða viðurkenningum er PokerStars VIP-klúbburinn örugglega fyrir þig.
Þú spilar
Hver einasti spilari sem spilar fyrir raunverulega peninga á PokerStars er sjálfkrafa meðlimur í VIP-klúbbnum. Fyrsta stig aðildar er brons, BronzeStar VIP. Því meira sem þú spilar á PokerStars,þeim mun hærra verður VIP-stig þitt.
Í hvert sinn sem þú spilar í móti þar sem greitt er þátttökugjald eða spilar í peningaspili með viðurkenndri tekju (rake) vinnur þú til VIP-spilarapunkta (VPP) sem ráða VIP-stigi þínu. Auk þess vinnur þú til spilarapunkta (FPP) sem hægt er að nota til að kaupa hluti í VIP-versluninni, í hvert sinn sem þú spilar á svæðinu. Þú getur skoðað VIP-stöðu þína hjá gjaldkeranum í anddyri PokerStars.
Þú vinnur þér inn
Þegar þú spilar á PokerStars vinnur þú til punkta fyrir fullgildar hendur sem þú spilar í peningapóker. Þessir punktar eru undirstaða VIP-klúbbsins, og það eru tvær tegundir sem hægt er að vinna til samtímis:
- VIP-spilarapunktar (VPP), sem ráða VIP-stigi þínu
- Inneign í spilarapunktum (Frequent Player Points, FPP), sem hægt er að leysa út fyrir varning í VIP-versluninni eða til að komast í mót
Einnig er vert að vita að því hærra sem VIP-stigið er þeim mun meiri FPP-inneign vinnur þú á hvern VPP.
Þér er launað
Fyrir FPP-inneignina sem þú vinnur til er hægt að fá frábæra hluti í VIP-versluninni, sem er opin allan sólarhringinn, alla daga. Hér getur þú fengið pókerhluti, föt, raftæki, miða á mót, aðgang að VIP-mótum og margt fleira.
Einnig er fljótlegt og auðvelt að fá umbun í VIP-kerfinu, og í fyrra var yfir $100 milljónum úthlutað úr VIP-kerfi PokerStars.
VIP-stig
VIP-klúbbur PokerStars er með sex mismunandi VIP-stig. Fyrstu fjögur, BronzeStar, SilverStar, GoldStar og PlatinumStar eru mánaðarleg VIP-stig, en Supernova og Supernova Elite miðast við eitt ár. Hvert stig gefur sérstakan flokk viðurkenninga og fríðinda.
Spilarar geta náð BronzeStar, SilverStar, GoldStar eða PlatinumStar með því að vinna til vissan fjölda af VPP í einum mánuði. Þegar þú hefur náð VIP-stigi færðu strax öll þau fríðindi sem það stig hefur að bjóða það sem eftir er mánaðarins og mánuðinn á eftir.
Ef þú vinnur til 100.000 VPP milli 1. janúar og 31. desember á einu almanaksári verður þú Supernova VIP. Þetta hefur forgang fram yfir mánaðarstigin og þú verður áfram Supernova það sem eftir er ársins. Hið sama á við Supernova Elite, sem útheimtir 1.000.000 VPP.
Nánari upplýsingar um VIP-stig, þar á meðal nákvæma útskýringu á fríðindunum sem fylgja hverju stigi má nálgast í Yfirliti yfir VIP-stig. Skoðaðu líka VIP-stigareiknivélina og Yfirlit um VIP-fríðindi.
Spilarakerfið
Spilarapunktar, Frequent Player Points, eða FPP-inneign, eru eldsneytið sem drífur VIP-klúbb PokerStars. Það er sama hvað þú leggur undir eða hvernig, þegar þú spilar á PokerStars vinnur þú alltaf til FPP-punkta fyrir fullgildar hendur. Þú verður hissa að sjá hve ört þeir hlaðast upp – og þá er bara að ákveða hvernig þú eyðir þeim! Nákvæmar upplýsingar um það hvernig þú vinnur til FPP, bæði í peningaspili og mótum, og lýsingu á því hvernig hægt er að eyða punktunum má fá á Spilarakerfi PokerStars.
VIP-verslunin
PokerStars-spilarapunktar eru jafn verðmætir og peningar og tryggja þér sérstakan aðgang að sumum bestu pókervörum í heimi. Í PokerStars VIP-versluninni getur þú keypt allt frá gæðafatnaði, iPod-um og pókerleiðbeiningabókum til sæta á World Series of Poker*, og jafnvel sportbíla! Þú getur séð tæmandi lista yfir þessar ótrúlegu vörur og fríðindi með því að fletta gegnum VIP-verslunina.
VIP-mót
Spilarar á öllum VIP-stigum PokerStars eiga rétt á að spila í sérstökum, reglubundnum mótum. Því hærra sem VIP-stig þitt er, þeim mun fleiri mót kemstu á. Sum mót eru ókeypis en á önnur þarf FPP-inneign til að kaupa sig inn, eftir því hvert VIP-stig þitt er. Nánari upplýsingar um þessa viðburði eru á lista yfir dagleg, vikuleg og mánaðarleg VIP-mót.
Nánari upplýsingar um VIP-kerfi PokerStars og Skilmála og skilyrði eru á PokerStars.
*WORLD SERIES OF POKER og WSOP eru vörumerki Caesars License Company, LLC („Caesars“). Caesars styður ekki PokerStars eða vörur þess, þjónustu, tilboð eða mót fjárhagslega eða á annan hátt.
Athugið að sumir tenglarnir á þessu svæði opna ensku útgáfuna af PokerStars
í nýjum glugga.





