PokerStars – viðurkenningar í VIP-kerfinu og bónusar – algengar spurningar
- Hvað er VIP-spilarapunktur?
- Í hvert sinn sem þú vinnur þér inn spilarapunkt (FPP) með því að spila í peningaspili eða móti vinnur þú þér inn VPP. Athugaðu að FPP-bónuspunktar, svo sem þeir sem safnast gegnum úrvalsstöðu gilda ekki fyrir VPP-punkta.
- Hvenær byrjaði VIP-klúbburinn?
- VIP-klúbburinn byrjaði 1. janúar 2006.
- Hversu lengi endist staða mín?
- Staðan SilverStar, GoldStar og PlatinumStar endist til loka almanaksmánaðarins eftir mánuðinn sem þú náðir stöðunni í, nema þú náir aftur því stigi eða hærra stigi. Þannig að ef þú safnar 4000 VPP-punktum milli 1. júní og 20. júní hefur þú náð GoldStar-stöðu fyrir júnímánuð. Staðan gildir áfram til loka júlí. Ef þú nærð stöðunni aftur í júlí (aðrir 4000 VPP-punktar) gildir hún til loka ágúst o.s.frv.
- Ef ég er með nógu marga FPP-punkta til að kaupa vöru, en hef sem stendur ekki tilskylda VIP-stöðu (t.d. GoldStar), get ég samt keypt vöruna?
- Nei, þú verður að vera með nógu marga FPP-punkta og einnig vera með tilskilda stöðu fyrir viðurkenninguna þegar þú gerir innkaupin. Ef þú varst til dæmis GoldStar VIP í febrúar en nú er kominn apríl og þú ert nú SilverStar getur þú ekki keypt GoldStar-vörur núna.
- Gilda aukalegir FPP-punktar sem ég vinn mér inn í VIP-kerfinu sem PokerStars-inneignarbónusar?
- Nei, þeir gera það ekki.
- Hvernig get ég kannað stöðu mína?
- Nákvæmar upplýsingar um stöðu þína, VPP-punkta þennan mánuð og þetta ár, svo og FPP-inneign er að finna í PokerStars-gjaldkeraglugganum þínum.
- Get ég yfirfært VPP-punkta á annan spilara á PokerStars?
- Nei, þú getur ekki yfirfært FPP- eða VPP-punkta á annan spilara.
- Renna VPP-punktar út?
- Já. Þú ert í rauninni með tvo VPP-teljara: annan mánaðarlegan (sem ræður BronzeStar-, SilverStar-, GoldStar- eða PlatinumStar-stöðu þinni) og svo árlegan (sem ræður Supernova-stöðunni). Mánaðarteljarinn endurstillist fyrsta hvers mánaðar, ársteljarinn 1. janúar ár hvert.
- Verðið þið með VPP-mót sem hægt er að kaupa sig inn í með VPP-punktum?
- Nei. Þeir eru einfaldlega kerfi þar sem þú fylgist með spilamennsku þinni á PokerStars.
- Ef VPP-teljarinn minn er endurstilltur í lok hvers mánaðar, hvernig fæ ég þá nokkurn tíma Supernova-stöðu?
- Við höldum í raun uppi tveimur teljurum – mánaðarteljara fyrir Silver/Gold/Platinum-stigin og ársteljara fyrir Supernova-stöðuna.
- Hvar get ég séð dagskrá fríaðgangsmóta fyrir meðlimi VIP-klúbbsins?
- Allar upplýsingarnar eru hér: Fríaðgangsmót VIP-klúbbsins.
- Hvar finn ég heildarlista yfir vörur sem ég get keypt með FPP-punktum?
- VIP-verslunin sýnir allar vörur sem hægt er að kaupa. Athugaðu að til að geta keypt sumar vörur þarf úrvalsstöðu, SilverStar-, GoldStar-, PlatinumStar eða Supernova-stöðu, allt eftir vörum.
- Mér skilst að ég geti keypt mig inn í PokerStars-mót og önnur mót með FPP-punktum mínum?
- Já. Nánari upplýsingar eru í kaflanum um innkaup í mót með FPP-inneign.
- Renna FPP-punktarnir mínir út?
- FPP-inneign rennur aðeins út ef þú hefur ekki unnið þér inn neina FPP-inneign á heilu almanaksári. Ef þú t.d. vannst þér inn einhverja spilarapunkta árið 2006 runnu þeir ekki út það ár. Ef þú hefðir hins vegar ekki unnið þér inn neina punkta á almanaksárinu 2007 hefðu punktar þínir runnið út 1. janúar 2008.
- Hversu mikið þarf að spila til að vinna sér inn ferð á *WSOP aðalmót?
- Það fer eftir spilavenjum hvers og eins, en kannski um það bil 250.000 hendur sem vinna til VPP-punkta eða jafngildis í spilamennsku á mótum. Spilari sem spilar á fjórum borðum í einu í tuttugu klst. á viku ætti að ná þessu á minna en ári.
Nánari upplýsingar eru á PokerStars VIP-kerfinu, þar á meðal uppfærðar upplýsingar um allar nýjustu viðurkenningar og bónusa.
*WORLD SERIES OF POKER og WSOP eru vörumerki Caesars License Company, LLC („Caesars“). Caesars styður ekki PokerStars eða vörur þess, þjónustu, tilboð eða mót fjárhagslega eða á annan hátt.
Athugið að sumir tenglarnir á þessu svæði opna ensku útgáfuna af PokerStars
í nýjum glugga.





