pokercasinosports

Spilaðu fyrir raunverulega peninga með GamersBank/GamersWallet

GamersCard

Hvað er GamersBank/GamersWallet?

GamersBank er brasilískt fjártæknifyrirtæki sem býður upp á greiðslulausnir og fjármálaþjónustu með sérstaka áherslu á „iGaming“ (netfjárhættuspilara), sem gefur kost á innleggjum og úttektum á PokerStars í rauntíma.

GamersWallet er vara GamersBank. Þetta er stafrænt veski: fljótt, öruggt í notkun og traust, sem leyfir viðskiptavininum að gera innlegg í rauntíma til að byrja strax að spila. Og upphæðina sem er tiltæk á GamersWallet-reikningi spilarans er hægt að taka út á bankareikning hans á örfáum sekúndum. 

GamersBank býður upp á veski og stafræna bankareikninga, smelltu hér til að velja einn og gerast áskrifandi.

Hvernig fjármagna ég GamersBank/GamersWallet-reikninginn minn?

Það eru margar leiðir til að fjármagna GamersBank/GamersWallet-reikninginn þinn. Smelltu hér til að kynna þér meira um fjármögnunarleiðir sem eru í boði.

Hvernig get ég lagt inn með GamersBank/GamersWallet?

Vinsamlegast nýttu þér einhverja af þjónustunum hér fyrir neðan sem mögulega eru í boði fyrir þig.

Tölvubiðlari: Til að leggja inn þarftu bara að skrá þig inn á reikninginn þinn og smella á „Cashier“-hnappinn. Næst skaltu smella á „GBgamers“-hnappinn og fylgja leiðbeiningunum á skjánum.

App: Til að leggja inn þarftu að skrá þig inn á reikninginn þinn, velja „Real Money“-flipann í anddyrinu, svo smellirðu á „Deposit“-hnappinn. Næst skaltu smella á „GBgamers“-hnappinn og fylgja leiðbeiningunum á skjánum.

Vefnotendur: Til að leggja inn þarftu bara að skrá þig inn á reikninginn þinn og smella á „Deposit“-hnappinn. Næst skaltu smella á „GBgamers“-hnappinn og fylgja leiðbeiningunum á skjánum.

Get ég gert hröð innlegg (e. Fast Deposit) með GamersBank/GamersWallet?

„Fast Deposit“ eiginleikinn (hröð innlegg) er í boði fyrir innlegg með GamersBank/GamersWallet. „Fast Deposit“ er fljót og örugg leið fyrir þig til þess að leggja peninga inn á reikninginn þinn með þeirri aðferð sem þér hentar best.

Kynntu þér meira um hröð innlegg.

Hver eru innleggstakmörkin fyrir GamersBank/GamersWallet?

Vinsamlegast kíktu í gjaldkeragluggann til að skoða núverandi innleggstakmarkanir á reikningnum þínum.

Hvað með úttektirnar mínar?

Þú mátt taka fjármuni út af Stars Account-reikningnum þínum inn á GamersBank/GamersWallet-reikninginn þinn að því gefnu að þú hafir áður gert ein kaup með GamersBank/GamersWallet undanfarna 12 mánuði.

Kíktu vinsamlegast á reglur okkar um úttektir til að fá nánari upplýsingar.

Hvernig virkar kerfið fyrir skiptigengi gjaldmiðla?

Við styðjumst við ráðandi miðmarkaðsgengi, sem gefið er upp af XE (ásamt smávægilegri þóknun ef við á), til þess að umreikna innleggin þín og úttektir í gjaldmiðilinn á reikningnum þínum. Fyrir frekari upplýsingar um þetta skaltu vinsamlegast kynna þér Skilmála og skilyrði fyrir millifærslu og gjaldmiðlaskipti raunverulegra peninga hjá okkur.

Hvað kostar það mig að nota GamersCard?

Við innheimtum engin gjöld fyrir að nota GamersBank/GamersWallet. Spilarar bera sjálfir ábyrgð á þeim gjöldum sem GamersCard gæti lagt á þá.

Aftur á aðalsíðu raunpeninga.