pokercasinosports

Spilaðu fyrir raunverulega peninga með WebMoney

WebMoney

Hvað er WebMoney?

WebMoney er greiðslukerfi á netinu sem leyfir þér að eiga í viðskiptum við notendur WebMoney eða seljendur í ýmsum gjaldmiðlum.

Skráðir notendur stjórna reikningnum sínum með öðru af tveimur ókeypis tólum:

  • WM Keeper Classic er sjálfstæður hugbúnaður sem er settur upp í tölvunni þinni. Til að sjá hvernig hugbúnaðurinn lítur út og hvernig hann virkar, farðu þá á síðuna um WM Keeper Classic á heimasíðu WebMoney.*
  • WM Keeper Light þarfnast ekki hugbúnaðaruppsetningar. Þú getur átt í viðskiptum í netvafranum, í gegnum örugga https-tengingu. Hann er hannaður fyrir viðskiptavini sem geta ekki eða vilja ekki setja upp WM Keeper Classic. Til að nota WM Keeper Light þarftu bara að setja upp persónulegt skírteini fyrir WebMoney Transfer og ræsa vafrann þinn.

Kíktu líka á síðuna fyrir þjónustuborðið á síðu WebMoney til að sjá kynningu á því hvernig þú átt að skrá og sjá um WM Keeper-hugbúnaðinn þinn, ásamt því hvernig þú sendir og tekur á móti millifærslum.

Eftir að þú hefur skráð þig og auðkennt reikninginn þinn hjá WebMoney, geturðu stofnað veski (sérstök gjaldmiðlaskilgreind rafveski) á WebMoney-reikningnum þínum.

Það er fjöldi leiða sem þú getur farið til að fylla á WebMoney-reikninginn þinn (t.d. bankasímsending, fyrirfram greidd kort, peningasending). Vinsamlega smelltu hér til að sjá að sjá lista yfir allar fjármagnsleiðir sem eru í boði fyrir veskisgerðina þína og landið.

Til að sjá nánari upplýsingar skaltu skoða heimasíðu WebMoney.

Hvernig get ég lagt inn með WebMoney?

Vinsamlegast nýttu þér einhverja af þjónustunum hér fyrir neðan sem mögulega eru í boði fyrir þig.

Tölvubiðlari: Til að leggja inn þarftu bara að skrá þig inn á reikninginn þinn og smella á Cashier-hnappinn. Næst skaltu smella WebMoney-hnappinn og fylgja leiðbeiningunum á skjánum.

App: Til að leggja inn þarftu að skrá þig inn á reikninginn þinn, velja Real Money-flipann í anddyrinu, svo smellirðu á Deposit-hnappinn. Næst skaltu smella WebMoney-hnappinn og fylgja leiðbeiningunum á skjánum.

Vefnotendur: Til að leggja inn þarftu bara að skrá þig inn á reikninginn þinn og smella á Deposit-hnappinn. Næst skaltu smella WebMoney-hnappinn og fylgja leiðbeiningunum á skjánum.

Hver eru innleggstakmörkin fyrir WebMoney?

Vinsamlegast kíktu í gjaldkeragluggann til að skoða núverandi innleggstakmarkanir á reikningnum þínum.

Hvað með úttektirnar mínar?

Þú mátt taka fjármuni út af Stars Account-reikningnum þínum inn á WebMoney-reikninginn þinn að því gefnu að þú hafir áður gert ein kaup með WebMoney undanfarna 12 mánuði.

Kíktu vinsamlegast á reglur okkar um úttektir til að fá nánari upplýsingar.

Hvernig virkar kerfið fyrir skiptigengi gjaldmiðla?

Við styðjumst við ráðandi miðmarkaðsgengi, sem gefið er upp af XE (ásamt smávægilegri þóknun ef við á), til þess að umreikna innleggin þín og úttektir í gjaldmiðilinn á reikningnum þínum. Fyrir frekari upplýsingar um þetta skaltu vinsamlegast kynna þér Skilmála og skilyrði fyrir millifærslu og gjaldmiðlaskipti raunverulegra peninga hjá okkur.

Hvað kostar það mig að nota WebMoney?

Við innheimtum engin gjöld fyrir að nota WebMoney. Spilarar bera sjálfir ábyrgð á þeim gjöldum sem WebMoney gæti lagt á þá.

Aftur á aðalsíðu raunpeninga.