pokercasinosports

Random Number Generator (RNG) - Framleiðsla slembitalna

Við lögðum fram ítarlegar upplýsingar um framleiðslubúnað slembitalna (RNG) til óháðrar stofnunar. Við fólum þessari virtu stofnun að gera yfirgripsmikla greiningu á handahófi úrtaks RNG-búnaðarins og útfærslu hans við stokkun spilanna á verkvangi okkar. Skoðaðu hér til að lesa heilindavottorðið (e. Certification of Integrity) og neðar til að kynna þér nánar stofnunina sem var notuð.

Til að lesa meira um allt það sem við gerum til að halda leiknum sanngjörnum skaltu vinsamlegast kíkja á öryggissíðuna okkar.

Faggilding Gaming Laboratories International

Framleiðslubúnaður okkar fyrir slembitölur (RNG) hefur verið fyllilega prófaður og telst standast viðmið í iðnaðinum samkvæmt því sem gildir um verulega eftirlitsskyldan rekstur af Gaming Laboratories International (GLI).

GLI býður faggildar sjálfstæðar prófanir þriðja aðila, úttektar og vottunarþjónustu. Faggilding GLI er byggð á fjölmörgum ISO stöðlum [ISO/IEC 17025:2005; ISO/IEC 17020:2012; ISO/IEC 17065:2012] og er gefin út af sjálfstæðum þriðju vottunaraðilum í ýmsum lögsagnarumdæmum á hnattvísu.

GLI er almennt viðurkennd sjálfstætt starfandi rannsóknarstofa og prófunaraðili á spilunarbúnaði og -vörum. GLI, í verktöku fyrir rekstraraðila og hugbúnaðarframleiðslu, fyrir hönd eftirlitsaðila með spilaiðnaðinum, samræmir tækni- og tækjabúnað við tæknilega staðla við spilun.

Til að fá nánari upplýsingar skaltu fara á www.gaminglabs.com, eða hafa samband við viðeigandi eftirlitsstofnun með spilun.

Orðalisti

Random Number Generator (RNG) - framleiðslubúnaður slembitalna: kerfi, útbúnaður eða einingakerfi sem framkallar talnaraðir sem virðast fullkomlega óskyldar öðrum talnaröðum.