pokercasinosports

2-7 (tvistur til sjöa) Single Draw Lowball

2-7 (tvistur til sjöa) Single Draw er útgáfa af dragpóker (e. draw poker), stundum vísað til sem Kansas City Lowball. Lowball leikir verðlauna bestu lághöndina, sem gerir hann að andstæðu leikja eins og Hold'em og Stud, þar sem hæsta höndin vinnur. Eins og borðleikirnir Hold'em og Omaha, er leikurinn spilaður með blindum (e. blinds) og hnappi (e. button) og er svo líka stundum spilaður með forfé (e. ante). Í Single Draw fær hver spilari tækifæri til að henda og draga einu sinni, þó þú megir líka standa (e. stand pat - ekki henda neinum spilum) þegar er dregið.

Svona spilarðu 2-7 Single Draw

Til að byrja með er mikilvægt að skilja að styrkleikaröðun handa er öðruvísi í 2-7 en í öðrum lágspilsleikjum (e. low games). í 2-7 telja raðir og litur gegn lághöndinni þinni og ásar eru alltaf háspil. Því er besta höndin: 7, 5, 4, 3, 2. Eftirfarandi 2-7 höndum (ekki tæmandi listi) er raðað frá þeirri veikustu (#1, sem vinnur sjaldan pottinn) til þeirrar sterkustu (#16, rærnar (e. nuts)).

  1. J, 7, 4, 3, 2 (allt í sömu sort - litur (e. flush))
  2. 8, 7, 6, 5, 4 (röð (e. straight))
  3. 7, 6, 5, 4, 3 (lægri röð)
  4. 5, 5, 5, 6, 3
  5. 2, 2, 7, 6, 5
  6. A, 9, 6, 4, 2
  7. A, 8, 7, 4, 2
  8. A, 5, 4, 3, 2 (ekki röð - ás hæstur)
  9. K, J, 8, 7, 4
  10. T, 7, 5, 4, 3
  11. T, 6, 5, 4, 3
  12. T, 6, 5, 4, 2
  13. 9, 7, 6, 4, 3
  14. 8, 6, 4, 3, 2
  15. 7, 6, 4, 3, 2
  16. 7, 5, 4, 3, 2

Blindfé

Draw leikir eru spilaðir með skylduboðum sem kallast blindir (e. blinds), þar sem spilarinn sem situr til vinstri við gjafarahnappinn leggur úr litla blind og spilarinn til vinstri við hann leggur út stóra blind. Litli blindur ef yfirleitt jafn hálfri upphæð stóra blinds. Lowball er líka stundum spilaður með forfé (e. ante), sem er lítið skylduboð sem hver spilari þarf að greiða út til viðbótar við blindféð.

Gjöfin

Hver spilari fær gefin fimm spil á grúfu. Þá hefst boðlota (e. betting round) þar sem þú átt möguleika á að annað hvort kalla/jafna (e. call), hækka (e. raise) eða pakka (e. fold). Spilarar sem enn eru með í höndinni eftir fyrstu umferð boða eiga nú möguleika á að draga. Þetta þýðir að þú getur reynt að bæta höndina þína með því að henda sumum spilum og fá gefin ný spil í þerra stað. Smelltu á spilin sem þú vilt henda og smelltu svo á Discard hnappinn. Þú mátt henda allt að fimm spilum ef þú vilt. Ef þú telur þig þegar vera með sterka hönd getur þú valið að standa (e. Stand Pat). Þetta þýðir að þú veljir að henda engu spilanna þinna. Þegar búið er að draga hefst önnur boðlota, þar sem spilarar eiga möguleika á að bjóða (e. bet) eða pakka (e. fold) (ef boð hefur verið lagt út áður en kemur að þeim að gera). Ef engin boð eru gerð eiga spilarar líka möguleika á að skoða/tékka (e. check). Ef fleiri en einn spilari er enn með í höndinni á þessu stigi leiksins er komið að hólminum (e. showdown) þar sem spilarinn sem heldur á bestu höndinni vinnur pottinn.

Aðgerðaröðin er eftirfarandi:

  1. Hver spilari fær fimm spil gefin
  2. Boðlota #1, byrjar á spilaranum til vinstri við stóra blind
  3. Henda/draga, byrjar á spilaranum til vinstri við hnappinn
  4. Boðlota #2, byrjar á spilaranum til vinstri við hnappinn
  5. Hólmurinn (e. Showdown - ef þörf krefur)

Í dragleikjum er möguleiki á að þörf sé á fleiri spilum en eru eftir í stokknum. Í þeim tilvikum eru spilin endurstokkuð og svo haldið áfram að spila með nýja stokknum. Til að fá nánari upplýsingar um endurstokkun í dragleikjum skaltu vinsamlegast kíkja á stokkurinn endurstokkaður.

Showdown - Hólmurinn, skorið úr um sigurvegara

Spilarinn með bestu fimm spila 2-7 pókerhöndina vinnur pottinn. Eftir að potturinn hefur verið veittur fyrir bestu höndina er hægt að byrja að spila næsta leik af 2-7 Single Draw.

Ef tvær eða fleiri hendur hafa sama gildi er pottinum skipt jafnt á milli þeirra. Sortir raðast ekki eftir styrkleikaröð til að skera úr um hver vinnur pottinn. Mundu að þessi leikur er öðruvísi en aðrar útgáfur af low eða high/low póker, þar sem ás getur verið annað hvort háspil eða lágspil. Í 2-7, er ás alltaf hæsta spilið.

Grunntæknin

Í Lowball eru flestar hendur sem eru vanalega sterkar í leikjum eins og Hold'em veikar. Pör, þrennur (þrjú eins), raðir og litur teljast allt vera háar hendur og eiga því ekki við í Lowball. Ef ekkert par er í hönd tapar spilarinn sem er með hæst raðaða spilið. Til dæmis, ef einn spilari er með 9-6-5-2-3 þá vinnur sú hönd 10-9-6-2-3. Í 2-7 leikjum eru ásar alltaf háspil og eru þess vegna ekki góðir. Þetta þýðir að spilari sem er með J-9-7-3-2 vinnur mótherja með A-9-7-3-2. Besta mögulega höndin er 7-5-4-3-2 í mismunandi sortum. Þetta er af því að höndin er lág, er ekki með ás og ekki röð eða litur. Þetta er svo ástæðan fyrir því að leikurinn er kallaður 2-7 Lowball.

Lærðu ókeypis að spila 2-7 Single Draw

Ef þú þekkir ekki 2-7 Single Draw póker mælum við með því að þú prófir leikinn fyrst, til að fá tilfinningu fyrir því hvernig hann er spilaður. Þér er alltaf velkomið að spila á ókeypis pókerborðunum á PokerStars, svo þú getir fínpússað hæfileikana áður en þú byrjar að spila raunpeningapóker.

Einnig, ef þig langar að spila aðrar útgáfur af dragleikjum, mælum við með að þú kíkir á Triple Draw 2-7 Lowball, Five Card Draw, eða Badugi, sem allir eru líka mjög vinsælir pókerleikir. Þessir leikir eru skemmtileg tilbreyting við hinn vinsæla Texas Hold’em leik og þeir eru einnig í boði undir hlutanum um pókermót hjá okkur.

Til viðbótar við 2-7 Single Draw bjóðum við líka upp á mörg önnur pókerafbrigði. Skoðaðu síðuna okkar um pókerleiki til að kynna þér málið.